Úrval - 01.01.1982, Side 7
meðgöngumæður
5
ganga með barn, bauð hún sig fram
og gerðist meðgöngumóðir fyrir barn-
laus hjón sem hún vissi ekki einu
sinni hver voru.
Dana, meðgöngumóðir í Detroit,
gerði þetta sem vinarbragð. Vinafólk
hennar, Brenda og Michael, voru í
öngum sínum. Þau gátu ekki eignast
barn og biðlistinn eftir kjörbarni var
óhæfilega langur. Dana hafði enga
löngun til að giftast eða eignast börn
sjálf. ,,En Brenda var besta vinkona
mín. Mig langaði að gefa henni
nokkuð sem hún gat ekki eignast. Og
allt í einu datt mér það í hug: Ég ætla
að bera bam fyrir hana. Það skal
verða gjöf mín til hennar. ’’
Þar sem enginn læknir, sem Dana
hafði samband við, vildi tæknifrjóvga
hana af ótta við málshöfðun fyrir mis-
beitingu lækniskunnáttu annaðist
Brenda þessa hlið málsins sjálf og
notaði til þess sprautunál og leið-
beiningar í almennum húsráða-
bæklingi. Síðar bar Dana annað barn
fyrirþessi hjón.
Patricia, þriggja barna móðir í
Kentucky, er ófrísk að barni sem hún
ber fyrir aðra konu. ,,Mér líður vel
með það sem ég er að gera,” segir
hún. , ,Þetta barn á eftir að færa barn-
lausum hjónum gleði og ást. Það eru
svo fá börn fáanleg sem kjörbörn. Of
margar konur gangast undir fóstur-
eyðingu eða varast þungun. Hvers i
vegna ættu barnlaus hjón að verða að
sæta því að taka að sér stálpað barn
þegar þau óska að eignast
hvítvoðung?”
Tilfinningastríð
Eiga peningar einhvern þátt í
atferli meðgöngumæðranna?
Barnlaus hjón eru oft tilbúin að
leggja fram ærnar fúlgur fyrir þau for-
réttindi að fá að verða foreldrar. Og
raunin var sú að peningar voru veiga-
mesti þátturinn hvað snerti meiri-
hluta þeirra meðgöngumæðra sem
Philip Parker sálfræðingur kannaði í
rannsókn sem hann gerði í samvinnu
við Læknaskóla Wayne State
University. Verulegur hópur til-
vonandi meðgöngumæðra var einnig
konur sem einhvern tíma höfðu misst
barn, tildæmisvið fóstureyðingu, eða
þær höfðu gefíð barn. I enn öðrum
tilvikum varð ekki annað séð en
meginástæðan væri tengd sterkri
löngun til að verða þunguð. Parker
segir: ,,Það veitir mörgum þeirra þá
tilfinningu að þær séu sérstakar
og/eða að það veitir þeim fullnægju
sem konum og þær gleðjast af því að
vera færar um að gefa börn. ’ ’
En það er sama hve ríka ástæðu
konan hefur til að verða meðgöngu-
móðir — hún getur ekki vænst þess
að sleppa við tilfinningastríð.
,,Þetta er engan veginn auðvelt,”
segir meðgöngumóðir sem enn á eftir
að fæða. ,,Ég fínn barnið sparka og
hreyfa sig en samt veit ég að ég á það
ekki.” Elizabeth Kane var svo altekin
af þeirri tilfínningu að hún væri að
fæða barn annarrar konu að meðan
hún lá enn á fæðingarbekknum bað
hún kjörmóðurina að leyfa sér að sjá
barnið rétt aðeins. Samt gat Elizabeth