Úrval - 01.01.1982, Síða 8
6
ÚRVAL
ekki útilokað tilfmningarnar. Hún
segist hugsa um barnið alltaf við og
við. ,,Hann var svo lengi hjá mér.
mér flýgur oft 1 hug hvernig honum
vegni.”
Meðgöngumæður verða einnig að
fást við eiginmenn, fjölskyldur, vini
og nágranna. David Kane viður-
kennir að hann hafi ekki vitað hvaðan
á hann stóð veðrið þegar Elizabeth
orðaði þetta fyrst. ,,Ég hafði aldrei
heyrt annað eins. Það tók mig langan
tíma að sætta mig við þetta.” En það
gerði hann þó að lokum svo rækilega
að hann hjálpaði konu sinni við
fæðinguna samkvæmt Lamaze-
aðferðinni.
Elizabeth ræddi málið líka við
börnin sín. ,,Þau eru vel gefín og
skilningsrík. Þeim fannst þetta stór-
kostleg aðferð til að sigrast á ófrjó-
semi og til að hjálpa ókunnugu fólki
sem þráði svo heitt það sem ég gat
gefíð.”
Kjörforeldrar sem leita á náðir
meðgöngumóður gera það venjulega
ekki fyrr en öll önnur sund eru lokuð.
Brenda, sem sjálf tæknifrjóvgaði
Dönu vinkonu sína, hafði gengist
undir móðurlífsskurð sem batt enda á
vonir hennar um að verða þunguð
sjálf. Hún lýsir örvæntingu svo
margra ófrjórra kvenna: „Þegar
maður sér móður með barn fínnur
maður tómleikann í sínu eigin
fangi.”
Kathy og Richard, bæði þrjátiu og
tveggja ára, hafa stigið fyrstu skrefín
til að eignast barn með hjálp með-
göngumóður. Þau lýsa annars konar
tómleika. „Hluti af þörfinni,” segir
Kathy, sem eggjastokkarnir voru
fjarlægðir úr áður en hún gifti sig,
„er ástin milli hjónanna. Hún nær
því marki að verða að þörf til að
stækka. Eðlilegasta leiðin er að barn
fái notið hennar líka. ’ ’
Vandamál og árekstrar
Þótt kjörforeldrum sé áfram um að
eignast barn verða margir þeirra að
horfast í augu við vandamál og
árekstra. Tengdafólk Brendu hefur
ekki virt hana viðlits né manninn
hennar síðan þau eignuðust tvö börn
fyrir milligöngu meðgöngumóður.
Og presturinn þeirra sagði við þau:
„Börnin hafa ekki syndgað en það
hafíð þið. Þið hafíð lagt sæði
Michaels í líkama annarrar konu. ’ ’
Á frjótæknistofnuninni í Louisville
verður meðgöngumóðirin að undir-
gangast rækilega læknisskoðun,
rannsókn á erfðasögu og þrír sál-
fræðingar verða að rannsaka hana og
gefa álit sitt á tilfínningajafnvægi
hennar og af hvaða hvötum hún vill
gefa sig í þetta. Og
hún verður að gefa frá sér móður-
réttinn þegar við fæðingu. Stofnunin
letur barnlausar tilvonandi með-
göngumæður til athafna af þessu tagi
vegna þess að frjósemi þeirra er ekki
sönnuð né heldur nokkuð vitað
hvaða tilfínningaróti þungun og
barnsburður getur valdið þeim.
Kjörforeldrarnir skuldbinda sig til
skilvísrar greiðslu. Meðallaunin eru