Úrval - 01.01.1982, Side 15

Úrval - 01.01.1982, Side 15
HVAD ER NÝTT UNDIR SÓLINNl? 13 þennan vetur og sumarið 1980 kom einhver mesta hitabylgja sem gengið hefur yfír Bandaríkin í elstu manna minnum. Við eigum það hins vegar Solar Max og öðmm rannsóknum að þakka að við emm byrjuð að skilja hvernig sólin snertir líf okkar. Við vitum ekki hvers vegna sveifluhreyfingar em á útstreymi sólarinnar okkar en við vitum þó að hún ræður lögum og lofum um framtíð okkar. ★ Persónudýrkunin á Stalín eða Maó Tse-tung er ekkert samanborið við persónudýrkunina á Kim II Sung, hinum tæplega sjötuga kommúnistaeinvaldi í Norður-Kóreu. Hann hefur látið reisa af sér gyllta styttu í Pjonjang, höfuðborg landsins. Þessi stytta er ekkert smáræði, litlir nítján metrar á hæð, og sést hvaðanæva í borginm.^ opinbemm plöggum er vitnað til hans sem „mesta byltingar- hugsuðar allra tíma, sólar mannúðarinnar”. Norðurkórear tala ekki um kommúnisma heldur Kimilsung-isma. Fæðingarstað Kims hefur verið breytt í safn sem tekur fímm daga að skoða. Gestir verða að nema staðar til íhugunar — eða bænar — frammi fyrir stólunum og bekkjunum þar sem hann hefur setið. Eitt sinn ferðaðist hann með neðanjarðarlest í Pjonjang. Síðan hefur sætið sem hann sat í verið hjúpað satíni og enginn má ferðast í þessum vagni sem er dreginn mannlaus með lestinni dag út og dag inn til heiðurs , ,okkar elskaða Kim II Sung’ ’. Úr Est-et—Quest Sjónvarpsstöðin í Wichita í Kansas lokar ekki milli útsendingartíma þegar von er á fellibyl. Þess í stað eru íbúar staðarins hvattir til að hafa sjónvörp sín opin og stilla á stöðina eins hátt og kostur er. Síðan drepur stöðin á hljóðinu í útsendingarlok og íbúarnir fara — væntan- lega — að sofa. Meðan þeir sofa eru veðurfræðingar önnum kafnir að fylgjast með veðurhorfunum. Þegar staðfest hefur verið að fellibylur sé að nálgast er skerandi viðvörunarhljóð sent út. Vissulega vaknar þá margur með ákafan hjartslátt en það eru menn þakklátir fyrir á stað þar sem vonskuveður skella yfír jafnt og þétt, jafnóumflýjanlega og skattarnir og dauðinn. — E. L.

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.