Úrval - 01.01.1982, Page 32
30
ÚRVAL
Sjaldan eÖa aldrei hefur jafnhart verið barist gegn
kristinni trú í Sovétríkjunum og nú er gert en kristnir
menn í landinu neita að gefast upp.
KREML
GEGN KIRKJUNNI
— Joseph A. Harriss —
ILLJÖNIR sjónvarpsá-
gjörvöll
*
*
>1'
M
horfenda um
Sovétríkin fylgdust með
játningunni. „Ég afneita
öllu sem ég hef hingað
til verið að gera,” las þrekvaxinn,
skeggjaður presturinn upp úr hand-
ritinu sem hann var með fyrir framan
sig. ,,Ég geri mér ljóst að hin svo-
kallaða barátta mín gegn guðleysi
hefur verið barátta gegn Sovétstjórn-
inni sjálfri.”
Faðir Dimitrí Dúdkó hafði um lang-
an tíma verið einn af forvígismönnum
þeirra sem börðust fyrir guðstrú
í Sovétríkjunum. Árið 1973 tók hann
að standa fyrir samkomum á laugar-
dagskvöldum með söfnuði sínum en
hann tilheyrði grískkaþólsku kirkj-
unni í Moskvu. Á þessum kvöld-
vökum svaraði hann af hispursleysi
spurningum safnaðarins um siðfræði
og hlutverk kristinnar trúar í lífi
manna nú á dögum. Mikill mann-
fjöldi kom á þessar kvöldvökur, sér-
staklega ungt fólk og menntamenn
sem greinilega voru snortnir af hrein-
skilnislegum árásum prestsins á
guðleysið. ,,Það þarf ekki mikið til
þess að vera guðleysingi,” sagði
hann. ,,En það er hetjudáð að trúa á
guð.”
Vaxandi fylgi fólks við Dúdkó varð
til þess að sovésk yflrvöld ákváðu að
senda hann í nýja sókn fjarri Moskvu.
Yfírvöldunum tókst þó ekki að þagga
niður boðskap prestsins. Predikanir
Dúdkós héldu áfram að berast til