Úrval - 01.01.1982, Síða 35

Úrval - 01.01.1982, Síða 35
KREML GEGN KIRKJUNNI 33 stunda bardaga sem á eftir fór. Ríkið náði að því búnu kirkjunni. Fulltrúar kirkjumálaráðuneytisins vinna í nánum tengslum við eftirlits- menn á hverjum stað sem skrifa niður hverjir koma til guðsþjónustu. Einstaklingar, sem taka þátt í starf- semi safnaða er ekki hafa hlotið viðurkenningu hins opinbera eða brjóta á annan hátt lög varðandi trú- mál, hljóta venjulega sekt sem svarar hálfum mánaðarlaunum verkamanns í Sovétríkjunum. Enn aðrar og illa þokkaðar leiðir til að ofsækja kristna menn eru að taka börn þeirra af heimilunum. Gott dæmi um þetta eru ákærumar á hendur hvítasunnu- fólkinu Anatoli og Antonínu Sévsénkó í síberíska námubænum Tsérnógorsk. ,,Þau neyddu börnin til þess að trúa á guð,” sagði ákær- andinn. „Þau neyddu þau til þess að lesa biblíuna, til þess að biðja og fara á bænafundi hjá hvítasunnusöfnuð- inum.” Heimtað var að þrjú börn Sévsénkóhjónanna yrðu sett á munaðarleysingjahæli. Sálmar bannaðir Stöðugt berast til Vesturlanda fyrir tilstilli leynilegrar útgáfustarfsemi kristinna manna fleiri og fleiri frá- sagnir um ofsóknir Sovétyfirvalda á hendur kristnum mönnum. Þessi rit kristinna manna em nú um 40% allra þeirra rita sem gefin em út á laun í Sovétríkjunum. Fjölmargir söfnuðir, sem öðluðust aukinn kjark með til- komu Helsinki-sáttmálans og þeirrar athygli sem þjáningar þeirra hafa vakið á Vesturlöndum, hafa nú aflað sér sinna eigin málsvara sem segja frá hefndaraðgerðum og ofsóknum, sem þeir verða að þola, og semja lista yfir þá sem hnepptir hafa verið í fangelsi vegna trúarskoðana sinna. Oft hættir þetta fólk miklu við störf sín. Til dæmis var hin 37 ára gamla Nijóle Sadúnaíte í Vilníus dæmd til þriggja ára þrælkunar og þriggja ára útlegðar þegar ein blaðsíða fannst í ritvél hennar úr blaði því sem gefið er út á laun í Litháen á vegum kirkjunnar. Ákæran hljóðaði upp á að hún væri að dreifa andsovéskum skrifum. Sovésk yfirvöld beita gjarnan dómum sem þessum við þrjóska guðsdýrkendur. Nokkur nýleg dæmi: ★ Valería Makíva, 49 ára gömul grísk-kaþólsk nunna, var tekin föst árið 1978 og sökuð um að hafa „stundað ólöglega verslun”. Hún hafði saumað út kuflbelti með texta úr 91. sálmi og síðan selt þau fyrir eina rúblu. Peningana notaði hún til þess að aðstoða nunnur úr klaustrum sem leyst höfðu verið upp. Hún var dæmd til dvalar um óákveðinn tíma á geðveikrahæli vegna þess að hún væri hættuleg umhverfl sínu. ★ Nikolaí Góretoí, 58 ára gamall prestur í Krasnodar nálægt Svarta- hafí, var tekinn fastur árið 1979 sak- aður um að hafa aðstoðað hvíta- sunnumenn við að sækja um að kom- ast úr landi. Þrátt fyrir að Góretoí
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.