Úrval - 01.01.1982, Page 36
34
ÚRVAL
væri bæði sjúkur og blindur — hann
hafði misst heilsuna vegna 10 ára
dvalar í fangabúðum — var hann
dæmdur til sjö ára þrælkunarvinnu
og síðan í fimm ára útlegð.
★ Vladimír Sélkof, leiðtogi
aðventista, var handtekinn í Tasként
árið 1978. Hann var 82 ára og sakaður
um að hafa „dreift upplognum
óhróðri um Sovétríkin”. Hann hafði
þegar setið í nærri 24 ár í fangelsi og
vinnubúðum og verið í útlegð en
samt sem áður var hann nú enn einu
sinni dæmdur og nú í fimm ára
þrælkun. Hann dó í janúar 1980 eftir
aðeins nokkurra mánaða afplánun.
Leynifundir
Hinn harði dómur Sélkofs sýnir ve!
afstöðu Sovéttíkjanna til einnar millj-
ónar óskráðra kristinna manna —
baptista, hvítasunnumanna og aðvendsta
— sem hafa neitað að sameinast
undir hatti hinnar ríkisvernduðu
mótmælendakirkju 1 landinu.
Baptistar eru fjölmennasti hópur
mótmælenda, um 100 þúsund
talsins. Jennadí Krjútskof, yfirmaður
baptista, hefur verið hundeltur
undanfarin 18 ár — og þar af eytt 3
árum í vinnubúðum. Hann ferðast
um landið og heldur leynifundi með
kirkjuleiðtogum og stjórnar leyni-
legri útgáfustarfsemi baptista sem
gefa út ritið Hinn kristni.
Útgáfan hófst fyrir tíu ámm og var
þá notuð vél úr gamalli þvottavél,
keðja úr hjóli og heimatilbúið blek
við prentun alls konar kristilegra rita.
Hópurinn, sem að þessari útgáfu
starfar, hefur ekki látið lögregluleitir
aftra sér. Þó hefur af þeim sökum
fimm prentsmiðjum verið lokað og
20 starfsmenn sendir í fangelsi. Fram
til þessa hafa verið gefnar út 500
þúsund biblíur og sálmabækur. Nú
hefur hópurinn yfir að ráða offset-
prentsmiðju sem hægt er að taka
sundur og flytja í smáhlutum, án þess
mikið beri á, hvert á land sem er.
Fáir en hugrakkir
Hin opinbera grísk-kaþólska kirkja
í landinu hefur samið frið við
ráðamennina í Kreml og styður
stefnu Sovétríkjanna á alþjóðavett-
vangi eins og til dæmis í Alkirkju-
ráðinu. Á móti kemur að trúar-
leiðtogar kirkjunnar njóta hlunninda
á borð við góð laun og akstur í
límósínum út á sveitasetur sín. Um
þetta hefur Alexander Solsénitsín
sagt með fyrirlitningu: „Kirkja undir
einræðisstjórn guðleysingja er fyrir-
bæri sem ekki hefur sést í 2000 ár. ”
Fáeinir hugrakkir menn hafa reynt
að endurvekja skilning grísk-kaþólsku
kirkjunnar á tilgangi sínum. Árið
1974 stofnuðu nokkrir gísk-kaþólskir
menntamenn prestaskóla í Moskvu.
Þeir hittust óformlega á heimilum
sínum og ræddu þar trúmál og skrif-
uðu meira að segja einu sinni opið
bréf til ungs fólks í Bandaríkjunum.
„Við styðjum hugmyndir ykkar um
frelsi, mannúð, heiðarleika og ást á
heiminum,” sögðu þeir. „Fyrir til-
stilli ykkar og þess fordæmis sem þið