Úrval - 01.01.1982, Blaðsíða 43
VÖXTUR ÁSTARINNAR
41
byrjað á því að forma í setningar
hugsanir sem koma til okkar beint og
óbrenglaðar: ,,Ég er hreykinn afþér.
Mér þykir vænt um að þú ert heima.
Mér fínnst gott að við skulum vera
saman.”
Snerting er líka leið til að tjá ást.
Klapp, atlot og annað sem gefur til
kynna væntumþykju milli hjóna,
foreldris og barns eða góðra vina eru
sterkar sönnur ástar okkar. Það em
margar leiðir til tjáskipta; mikil-
vægast er að þekkja tilfinningar sínar
og koma þeim til skila. Ef við van-
rækjum það svíkjum við ástvini okkar
um vitneskju ástarinnar og okkur sjálf
um þá ánægju sem sú opinberun
veldur.
ÁST ER EKKI einföld athöfn. Hún
er andrúmsloftið sem við lifúm í, lífs-
löng vogun. I henni emm við alltaf
að læra, uppgötva og þroskast. Það er
ekki hægt að eyðileggja hana með
einni yfírsjón eða vinna hana á andar-
taki. Ást er andrúmsloft — andrúms-
loft hjartans. ★
Margir fara í rúmið á kvöldin og velta fyrir sér tveim brennandi
spurningum. Annar hópurinn spyr hvað verði um ódauðlega sál
þeirra en hinn hvort bíllinn þeirra fari í gang næsta morgun.
— L. P.
Gary nokkur Kissel sneri aftur til vinnu sinnar hjá flugfélaginu
Pacifíc Southwest Airlines eftir að hafa gengist undir hjartaaðgerð
með ráðleggingar læknis síns í nesti. Þegar streita starfsins sótti að
gekk Kissel fyrir einn yfirmanna sinna og sagði með rósemi:
, .Læknirinn minn bannar mér að hlusta á gagnrýni. ’ ’
— N.M.
Nokkrum vikum eftir heimsókn mína hjá gleraugnasérfræðingnum,
sem tók að sér að útbúa ný gleraugu fyrir mig, fékk ég stórt umslag í
póstinum. Innan í því var stór pappírsörk sem á stóð með fímm
tommu háum stöfum: „GLERAUGUN ÞlN ERU TILBÚIN.”
— P. H.
Þegar ég var að passa börnin í næsta húsi rakst ég af tilviljun á
minnislista húsmóðurinnar. Ég las hann annars hugar: þvo þvott,
ryksuga, hringja í barnfóstruna og svo framvegis. Síðasta atriðið á list-
anum var skrifað smærri stöfum en vel læsilegt: fela óstraujaða
þvottinn. __D. L.