Úrval - 01.01.1982, Síða 48
46 ÚRVAL
Breytt útlit getur verið uppörvandi en verið á verði
gagnvart óvönduðum vinnubrögðum.
FEGRUNARAÐGERÐIR
— Leslie Watkins —
KKJA
.*•------
*
*
*
nokkur í
'(!)■ Manchester, 42 ára
>j) gömul, sem kvíðir því að
fara að standa á eigin
fótum, fer í andlits-
lyftingu sem eyðir aldurshrukkum.
Einkaritari í Bristol, 19 ára gömul,
gengst undir aðgerð til að minnka hið
gríðarstóra nef hennar.
Húsmóðir í Oxford, 32 ára, óttast
að hún hafi misst „kvenleik” sinn
þegar brjóst hennar slöknuðu
heilmikið eftir að hún hafði haft
þriðja barn sitt á brjósti. Hún lætur
lagfæra þau og fær sjálfstraust á ný.
Ungur maður í London, 21 árs, tekur
mikilvægt skref 1 þá átt að binda enda
á kvalafulla feimni — með því að láta
lagfæra , ,flugeyrun’ ’.
Ekkert af þessu fólki er ríkt, frægt
eða sérlega bágstatt. Það þarf ekki að
óttast sviðsljósið eins og Cilla Black
sem fór í nefaðgerð til að ganga betur
í augun á áhorfendum. Samt lagði
það á sig fyrirhöfnina, óþægindin og
kostnaðinn, sem er töluverður, við
fegrunaraðgerð á einkastofnunum.
Af hverju?
Einn félagi í British Association of
Plastic Surgeons (BAPS) (Félag
breskra lýtalækna) segir: „Mörgum
frnnst sem eitthvað í útliti þeirra
valdi vanda. Það dregur úr sjálfs-
öryggi og getur valdið alvarlegum
hegðunarvandamálum. Sumir þróa
með sér minnimáttarkennd sem
hamlar því að þeir geti lifað eðlilegu
lífi. í slíkum tilfellum getur fegmnar-