Úrval - 01.01.1982, Page 51
FEGR UNARAÐGERÐIR
49
áríðandi var hún skorin upp innan
nokkurra vikna. Hann segir: „Nú er
hún góður atvinnudansari. ’ ’
Ný viðhorf
Þeir sem ekki hafa tíma til að bíða
eftir meðferð NHS læknanna hafa
snúið sér að einkastofum. Prófessor
Calnan orðar það svo í tímaritinu
World Medicine:
„Áður fyrr voru fegrunaraðgerðir
aðeins fyrir fáa en nú geta þeir mörgu
sem trúa því að unglegt útlit og vel
lagaður líkami séu eftirsóknarverðir
eiginleikar einnig fengið hjálp. Fólk
er farið að líta svo á að með nokkrum
tilkostnaði sé jafnauðvelt að láta
breyta útliti sínu eins og að fá sér lita-
sjónvarp, bíl eða skipta um föt og það
er eins virðingarvert að fá andlits-
lyftingu eins og frystikistu. ’’
Andlitslyfting er venjulega gerð
undir deyfíngu. Þegar búið er að raka
burt dálítið af hári gerir skurð-
læknirinn skurð sem hefst við gagn-
augað og liggur niður á við meðfram
hársverðinum niður að eyra. Þar
heldur skurðurinn áfram en nú
framan við eyrað, undir eyrna-
snepilinn og upp á við og endar aftan
á hálsinum. Húðinni er lyft frá
andlitinu með því að skera í gegnum
fítu og vefi sem halda húðinni annars
ásínum stað.
Þar sem andlitshúðin er nú laus
getur læknirinn tosað hana varlega til
og sléttað hana yfir kinnbeinin. Og
smám saman hverfa hrukkur og
ójöfnur. Þegar læknirinn er ánægður
með nýju kjálkalínuna og kinnina,
sem áður var slök, sker hann umfram-
skinnið frá og saumar jaðrana saman.
Svo er búið um skurðinn.
Þessi lýsing gæti gefið þá hugmynd
að fegrunarskurðlækning sé ekki
meira mál en að fara til tannlæknis.
,,En það væri rangt að gefa þá
hugmynd,” segir einn NHS
félaganna. ,,Þegar skorið er í
mannlegt hold er alltaf til staðar
sýkingarhætta eða hætta á að gera
meiðsli sem tekur langan tíma að
græða.”
Varnaðarorð
Sumir fara villir vegar þegar þeir
halda að fegrunaraðgerð leysi vanda
þeirra. Nauðsyn ráðgjafar áður en
ákveðið er hvort eigi að gera aðgerð
eða ekki er undirstrikuð af lækni í
félagsskap BAPS. Hann segir: Nýlega
ræddi ég við sex manneskjur sem
sóttu eftir aðgerð en það er
venjulegur fjöldi á dag. Tveim sagði
ég að aðgerð af þessu tagi væri ekki
fyrir þær, öðmm tveim sagði ég að
hugsa ráð sitt betur. ’ ’
Þó að aðgerð sé ráðlögð getur verið
að hún uppfylli ekki þær vonir sem
gerðar vom. ,,Vonbrigðaskrám”, ef
það mætti orða það svo, er að mati
prófessors Calnans þessi: 15% fyrir
brjóstastækkun, 20% fyrir brjósta-
minnkun, augnloka- og andlits-
lyftingu og 30% fyrir nefbreytingu.
Þetta er meðal annars ástæðan fyrir
því hvers vegna virðingarverðir
skurðlæknar neita að gera aðgerðir