Úrval - 01.01.1982, Síða 52
50
ÚRVAL
sem þeir halda að ekki verði hægt að
gera fullkomlega.
Eitt dæmi um aðgerð sem reyndist
ófullnægjandi er tilgreint af dr.
Thomas, félaga í Breska lækna-
félaginu. Þar var um að ræða mann á
fertugsaldri sem tók synjun um starf
er hann sótti eftir mjög nærri sér en
neitunin var af því að hann leit ekki
nógu unglega út. — Hann ákvað að
fá unglegra útlit og láta fjarlægja
poka undir augunum.
Af því að hann hélt að félagar
læknafélagsins sinntu aðeins „veiku”
fólki ræddi hann málið ekki við
lækninn sinn. Hann fór eftir
auglýsingu frá stofu í London þar sem
læknir, „leikmaður”, gerði
aðgerðina. Dr Thomas segir svo frá:
„Maðurinn fékk enga ráðgjöf og hitti
lækninn sem gera átti aðgerðina ekki
fyrr en hún fór fram. ’ ’
Aðgerðin tókst illa og skildi eftir
sig ljót ör undir augunum. Önnur
aðgerð, gerð fjórum mánuðum
síðar, til þess gerð að laga örin, hafði
þjáningarfulla og alvarlega sýkingu í
för með sér. Á endanum fór
maðurinn til heimilislæknis síns sem
gat ráðið niðurlögum sýkingarinnar
með mótefnum. En vegna þess að
örin kipruðust saman gat
sjúklingurinn ekki lokað augunum
almennilega — og átti erfitt með að
depla þeim. Að lokum var mesta
eyðileggingin bætt af lækni í NHS,
sem græddi húð af öðrum líkams-
hlutum á hann, en varanleg ör verða
þar alltaf. Dr. Thomas segir: „Upp-
haflega aðgerðin kostaði manninn
23.625 krónur en staðreyndin er sú að
maðurinn þurfti ekki á uppskurði
að halda. Vandi hans var sálræns eðlis
en þar sem hann hlaut enga ráðgjöf
fyrir aðgerð var þessi möguleiki ekki
meðí spilinu.”
Sem vörn gegn svona meðferð
hefur breska heilbrigðisráðið gefið út
yfirlýsingu þess efnis að læknar á
einkastofum skuli ganga úr skugga
um að sjúklingur hafi hlotið ráðgjöf
og að hann sé hæfur til að undir-
gangast aðgerð. Talsmaður þess gefur
þessi ráð til allra þeirra sem hugsa um
fegrunaraðgerð:
„Farðu fyrst til heimilislæknisins.
Hann getur sagt þér hvort fegrunar-
aðgerð hentar. Ef hann heldur að þú
þurfir á henni að halda — læknar eru
hvattir til að meðhöndla slíkar óskir
með meiri samúð en gert hefur verið
hingað til — getur hann líka sagt þér
hvort þú uppfyllir þær kröfur sem
NHS gerir. Það skal viðurkennt að
biðin hjá NHS er löng. Ef þú vilt fara
á einkastofu getur læknirinn þinn
vísað þér á stofu með hæfum lækni og
látið hann hafa sjúkrasögu þína. Á
þennan hátt er ekki hætta á að þú
lendir á stofnun sem ekki hefúr gott
orð á sér. ’ ’
Augljóslega er fegrunarskurð-
lækning ekki eins einföld og áhættu-
laus eins og hún virðist stundum
vera. Val læknis, þó um smáaðgerð sé
að ræða, skiptir miklu máli.
Hagnaðurinn sem hægt er að ná með
aðgerð sem heppnast vel — og flestar