Úrval - 01.01.1982, Page 55

Úrval - 01.01.1982, Page 55
53 Martröðin var að verða að veruleika hjá björgunarkafaranum Don Dibble. Hann lá og gat sig hvergi hreyft undir grjótskriðu langt niðri í vatnsfylltri gjá. Hann fann að súrefniskúturinn var að tæmast. Spurningin var ekki hvort hann myndi deyja heldur hvernig. I DÖKKVA DJÚPSINS — O. C. Garza — SföföKSKSiC* 0 eins og í fyrri skiptin, þegar Don Dibble hafði kafað í Jacob’:, Well, fann hann að hrollur fór ***** um hann í kölc u vatn- * *• .* * N * * * * inu. Hann hagræddi andlitsgrímunni g !eit í flýti yfir öryggisbúnaðinn sem iauðsynlegur var þegar kafa átti niður á mikið dýpi: öryggisljós, öryggislína, beittur hnífur. Félagi hans, Calvin Turner, var ekki aðeins búinn venjulegum öryggisbúnaði heldur var hann líka með auka súr- efniskút með sér. Þeir félagar stungu sér og syntu niður eftir lóðréttum göngum, niður á 16,5 m dýpi. Þegar þangað var komið tóku göngin að þrengjast og lágu inn í dimman helli. Fljótlega varð svo þröngt um þá að þeir urðu næstum að skríða og gátu tæpast synt lengur. Straumurinn jókst og kastaði köfurunum af og til á ósléttan klettavegginn. Smásteinar, sem straumurinn bar með sér, komu allt í einu út úr myrkrinu, lentu á andlitsgrímunum þeirra og byrgðu þeim sýn eins og smástirnadrífa. Don nam staðar til þess að athuga dýptarmælinn sinn á 25,5 metra dýpi. Hann var nú staddur í þröngum helli, líkustum hvelfíngu. Ljósið hans — Stytt úr Oceans —

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.