Úrval - 01.01.1982, Page 56

Úrval - 01.01.1982, Page 56
54 ÚRVAL skein í gegnum steinaregnið og féll á grjóthrúgur sem fylltu hverja sprungu. í slíkum straumi mátti búast við að hættulegt grjót gæti hvenær sem var færst úr stað eða hrunið í tonnatali. Aldrei áður hafði Don séð ástandið í Jacob’s Well jafn- slæmt og nú. Þegar komið var niður á 27 metra rétt fyrir framan kistulaga opið sem lá inn í fjórðu hvelfinguna í hellinum nam hann staðar. LÖGREGLAN í SAN Marcos vakti Don klukkan eitt um nóttina til þess að segja honum að tveir kafarar í viðbót hefðu nú farist í hellunum í suðvestanverðu Texas sem voru svo vinsælir meðal kafara. Dibble, sem hafði verið kafari í sjóhernum og kenndi nú köfun, tók strax að hringja í sjálfboðaliðasveit sína. Klukkan þrjú um nóttina söfn- uðust menn svo saman við Jacob’s Well, rúmlega 30 km frá San Marcos. Þeir tveir sem eftir voru af þeim fjórum köfurum, sem þarna höfðu verið að kafa, sögðu nú frá því hvern- ig fjórmenningarnir hefðu fyrst kannað hellinn. Leiðir skildu og tveir höfðu látið sér nægja að kafa í grynnri hluta hellisins en hinir höfðu hætt sér niður á meira dýpi, niður fyrir þrönga opið á 27 metra dýpi. Frásagnir kafara, sem séð hafa niður fyrir þessi þrengsli, eru heldur óáreiðanlegar. Sumir halda því fram að göngin liggi niður í víðáttumikla hella. Aðrir segja að göngin lokist skömmu eftir að komið er fram hjá þrengslunum. Hvað sem leyndist þarna handan við þrengslin hafði það kostað fjögur mannslíf. Þeir tveir, sem þarna voru á ferð, vissu um þessi dauðsföll en eitthvað hafði knúið þá áfram til þess kannski að reyna að breyta staðreyndunum og sýna að takast mætti að snúa lifandi þaðan út. Mennirnir tveir, sem haldið höfðu sig á grynnra vatni, horfðu furðu lostnir á félaga sína ryðja sér braut í gegnum tálmanirnar. Þeir héldu sig nærri og börðu í súrefniskútana sína. Ekkert svar barst þeim til eyrna úr hvelfingunni handan við opið. Þeir áttu ekki mikið súrefni eftir sjálfir svo þeir skildu ljósið sitt eftir við opið og héldu upp á yfirborðið. Klukkan 3:30 sendi Dibble tvo kafara niður í hellinn til þess að kanna aðstæður. Hann stóð á kletta- barminum við opið. Við hlið hans lágu tveir stórir líkpokar, vandlega brotnir saman og pakkað inn í sótthreinsaðar umbúðir. Þegar könnunarkafararnir komu upp aftur skýrðu þeir frá því hve straumurinn var mikill og öllum þeim ósköpum af grjóti sem lágu fyrir framan þrengsl- in. Don ákvað að kanna sjálfur aðstæður síðar um morguninn þegar meiri hjálp hefði borist. NÚ VAR DON kominn niður og var staddur fyrir framan fjórða hell- inn þar sem hann leit á þrýstings- mælinn sinn. Hann átti eftir yfir 1000 pund af lofti en hann vissi að á 27

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.