Úrval - 01.01.1982, Side 67

Úrval - 01.01.1982, Side 67
VÖR UMERKJASVINDL 65 vörur er eins víðtækur og breiddin í vörutegundunum. Dýrustu hlutirnir fara til Vestur-Evrópu, Bandaríkj- anna, Rómönsku Ameríku, Japans og olíuauðugu þjóðanna í Mið-Austur- löndum. Vörur sem minna er lagt í fara til Afríku og fátækari hluta Asíu. Hvað framleiðendur varðar eru Taiwan og Ítalía aðalútflytjendurnir, þar sem talið er að Taiwan framleiði um það bil 60% af öllum fölsuðum vörum, en fast á hæla þess koma svo Hong Kong, Suður-Kórea og Indland. Öldum saman takmörkuðu falsarar sig að mestu leyti við að stæla mynt og bankaseðla annarra þjóða. Nú hefur falsaramarkaðurinn stórlega fært út kvíarnar og má segja að hver einasta vörutegund, með vel þekkt vörumerki, eigi á hættu að vera fölsuð. Fyrsta vörutegundin sem varð illa fyrir barðinu á þessu voru armbandsúr. Falsanir á svissneskum og frönskum gerðum komu frá fram- leiðendum á Ítalíu og í Hong Kong og á árunum 1950 til 1970 fóru þær eins og eldur í sinu um lönd og álfur. í kringum 1970 urðu franskir fram- leiðendur tískufatnaðar og lúxus- varnings í vaxandi mæli varir við falskar eftirlíkingar á boðstólum allt frá Mexíkó til Tokýó. Ferðatöskufyrir- tækið franska, Louis Vuitton, 100 ára gamalt, var eitt fórnarlambanna. Árið 1979 fúndu tollverðir við venjulegt tolleftirlit við svissnesk- frönsku landamærin 363 fölsuð eintök af Vuitton framleiðslu með stöfum Vuitton greyptum í efnið að hætti framleiðandans. Þetta fannst í farangri tveggja húsvagnsferðalanga. Sviknu vörurnar voru teknar og ferða- langarnir handteknir og síðar varpað í fangelsi. Nánari leit leiddi í ljós fleiri eftir- líkingar af handtöskum og ferða- töskum en einni spurningu var ósvarað: Hvar fengu falsararnir efni merkt vörumerki Vuitton? I mars 1979 fann lögreglan 37.600 metra af vel stældu Vuitton efni í vefnaðar- verksmiðju í nágrenni við Lecco á Ítalíu. Verksmiðja þessi hafði á skrá hjá sér 220 viðskiptavini í Evrópu, Asíu og öðrum stöðum sem undir- strikar hversu víðtækt svindlið var orðið. Breskur vefnaðarvöruiðnaður hefur einnig freistað svindlaranna. Þingmenn í heimsókn í vefnaðarvömverksmiðju á Taiwan stönsuðu á leið sinni um verk- smiðjuna er þeir rákust á, á sýningarein- tökum, merki svo sem: „Made in Huddersfield”, „Made in Britain” og „100% breskt ullargarn”. Eins og verslunarráðherrann, John Nott, skýrði fyrir þingmönnum telst sala þessara efna í Bretlandi refsivert athæfi en ríkisstjórn Bretlands gat ekki komið í veg fyrir að þessi fram- leiðsla færi á aðra markaði. Svindlarar færa alltaf út kvíarnar og alltaf verður framleiðsla þeirra ómerkilegri en vömtegundir þær sem þeir líkja eftir en gefur dágott í aðra hönd. I Afríku er fimm milljónum eftirlíkinga af Milford hurða-

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.