Úrval - 01.01.1982, Blaðsíða 68
66
ÚRVAL
læsingum (breskt vörumerki) dreift
árlega milli söluaðila. Sex milljónir
amerískra rafhlaðna, framleiddra í
Shanghai fyrir verslunarmenn í Hong
Kong, voru seldar frá september 1979
til júní 1980 í Mið-Austurlöndum. í
sumum hlutum Suður-Evrópu og
Asíu er staða hljómplötuiðnaðarins
svo slæm að sala á fölsuðum
kassettum og hljómplötum fer Iangt
fram úr því magni sem framleitt
hefur verið á löglegan hátt.
Mikil breidd
Tækni svindlaranna nær yfír vítt
svið. Verksmiðja á Taiwan, sem fram-
leiðir vélavarahluti, veitir yfír 100
manns atvinnu og verksmiðja í Flórens
framleiddi allt að 15.000 eintök af
Cartier leðutvömm mánaðarlega áður
en það var uppgötvað í júní
1980. Hins vegar em allmörg verk-
stæði í pakistönsku borginni Sialkot,
við indversku landamærin, sem
framleiða falsaða handsaumaða
Adidas fótbolta.
Eftirlíkingar af ilmvötnum, svo
sem Chanel, Patou og Nina Ricci,
vom um skeið framleiddar í tveim
þorpum sem em á indónesisku
eyjunnijövu.
Oft em þessar vömr stimplaðar
fölskum vömmerkjum eftir að þær
koma til ákvörðunarlandsins. Ef
tollurinn rekst á vömrnar áður er ekki
hægt að leggja löghald á þær. Önnur
tegund af svindli er að bæta stöfum
við vel þekkt vömmerki. Ómerkileg,
fölsuð japönsk úr, með vörumerkinu
Aseikon, halda því þar til þau koma
til seljanda sem nemur burtu A og N
og selur þau sem Seiko.
Mestur hluti falsviðskiptanna er
boðinn á lágu verði í óbrotnu
umhverfi — í vömhúsum í hliðar-
götum, markaðsbásum og hjá götu-
sölum. En sumir falsarar ganga svo
langt að stela nöfnum uppmnalegra
framleiðenda vömnnar og setja í
verslanir sínar þar sem þeir hafa
fölsuðu vömna til sölu.
Tvö frönsk fyrirtæki, Cartier og
•Lacoste, sem framleiðir sportfatnað,
horfðu hjálparvana á er röð glæsilegra
búða í Mexíkó stal nöfnum þeirra.
Þessi fyrirtæki höfðu einkarétt á
nöfnum sínum í Mexíkó og fjöldinn
allur af dómum um þetta mál var
þeim í vil en það virtist engin áhrif
hafa á ráðandi aðila þar um slóðir. Til
að gefast ekki alveg upp opnaði
Cartier fyrirtækið í nóvember 1980
sína eigin verslun í Mexico City,
nokkrar dyrabreiddir frá einum
falsaranna, og hóf þar með slaginn
um viðskiptavinina.
Oft eiga meira að segja hinir réttu
eigendur vömmerkjanna erfitt með
að skera úr um hvort er hvað:
Talsmenn Raleigh, sem framleitt
hefur hin eftirsóttu Chopper reiðhjól,
segja að að því undanskildu að annað
p-ið vantar í nafnið sé það einung-
is á færi sérfræðings að segja
til um af útlitinu einu hvort um
ekta hlut er að ræða: en innri gæði
fölsuðu hjólanna leiði fljótt til
vandræða. Bílluktaframleiðandinn