Úrval - 01.01.1982, Blaðsíða 70
68
ÚRVAL
falsaða dótið og handtók hinn 33 ára
gamla Gianfranco Chih. Fengurinn
var full hleðsla á sex stóra
flutningabíla.
I desember 1980 var Chih dæmdur
í 19 mánaða fangelsisvist, auk þess
sem hann þurfti að greiða máls-
kostnað og háar bætur til þeirra fyrir-
tækja sem verið höfðu fórnarlömb
falsananna. Hann áfrýjaði dóminum.
Bresk iðnfyrirtæki em nú farin að
leggja í púkk með upplýsingar um
falsfyrirtæki. Félag gegn fölsumm,
sem stofnað var 1980, hefur innan
sinna vébanda fulltrúa frá Dunlop,
Lucas Industries, Parker Pen,
Wellcome Foundation og Ronson
Products. Hljómplötu- og kassettu-
fyrirtæki reyna að verja sig með því að
hafa í sinni þjónustu njósnarahóp og
sérfræðinga á sviði dómsmála sem
hendast um landið í leit að fölsuðum
vömm á þeirra sviði.
Sigur
Einn stærsti sigurinn fékkst 1 ágúst
1980. Samkvæmt utanaðkomandi
bendingu fóru níu flokkar, vopnaðir
sérstökum réttarúrskurði, og skyndi-
könnuðu byggingu í London þar
sem þeir komu höndum yfir heilan
skóg af hljóðritunartækjum og
fölsuðum, áspiluðum kassettum.
Hæstiréttur fyrirskipaði rannsókn á
þeirri eyðileggingu sem 19
einstaklingar og fyrirtæki höfðu
valdið og lagði lögbann við frekari
fölsun.
Lögfræðingurinn William Walker
hefur verið iðinn við að koma upp
um svindlarana, frá árinu 1978, er
hann var ráðinn af Levi Strauss
félaginu í San Fransisco, stærsta galla-
buxnaframleiðanda heims. Þá hafði
fyrirtækið rétt lokið við að koma upp
um það sem það kallaði „þróuðustu
svindlmiðstöð” sem það hafði
nokkru sinni komist í tæri við.
Fölsuðu Levisbuxurnar voru saumaðar
á Taiwan fyrir fyrirtæki í London og
dreift um Evrópu. Málaferli höfðuð
af Levi Strauss í mörgum löndum
leiddu til upptöku 150.000 falsaðra
gallabuxna á Taiwan, 1 Sviss,
Hollandi og Belgíu, hárra fébóta og
fangelsunar forsvarsmanna fyrir-
tækisins á Taiwan.
Áður en Walker gekk í lið Levi
Strauss var hann viðskiptafulltúi um
tveggja ára skeið fyrir hönd Banda-
ríkjanna á „Tokyo Round” sem sér
um fjölþjóða verslunarsamninga.
Vorið 1978 var hann aftur hjá
„Tokyo Round” og nú sem einka-
lögfræðingur Levi Strauss og annarra
amerískra og evrópskra fyrirtækja sem
óttuðust falsanir. Hann setti fram
nákvæmar reglur til að koma í veg
fyrir falsanir, ætlaðar til að fá ríkis-
stjórnirnar til athafna.
Árið eftir samþykkm þjóðir Efna-
hagsbandalagsins, Bandaríkin, Nýja-
Sjáland og Ástralía uppkast að
reglum þess eðlis að þessar neyslu-
þjóðir myndu gera falsaðar vörur
upptækar og koma í veg fyrir fram-
leiðslu á þeim. Walker vonar að aðrar
þjóðir undirriti samþykkt þessara