Úrval - 01.01.1982, Blaðsíða 71
V ÖR UMERKJA S VINDL
69
reglna sem ráðgert var að yrðu
tilbúnar á árinu 1981.
Vandinn er sá að þær þjóðir sem
aðallega eru ábyrgar fyrir fölsuðum
vörum hafa sjaldan tekið röggsamlega
á afbrotunum. Lögreglan hefur öðru
meira áríðandi að sinna. Refsingar að
lögum hafa verið léttvægar. Afstaða
opinberra aðila hefur sýnst tiJ þess
fallin að stappa stáli í falsarana:
Taiwan er ekki aðili að Parísarsátt-
málanum sem verndar vörumerki og
fram að þessu hafa stuttir fangelsis-
dómar yfir þeim sem staðnir hafa
verið að fölsunum fengist leystir með
smáþóknun, eða jafnvirði 225
íslenskra króna. Vegna þrýstings frá
evrópskum framleiðendum hefur
Taiwanstjórnin nýlega kunngjört
reglur sem, ef þeim er fylgt eftir,
gætu stórlega dregið úr útflutningi
falsaðra vörutegunda.
Á meðan getum við neytendur haft
hag af því að fylgja eftirfarandi
reglum:
Gættu þín á lokkandi, lágum
tilboðum á vörum með vel þekktum
vörumerkjum.
Það er ekki sama hvar maður
verslar. Verslaðu fremur í búð en á
götunni.
Rannsakaðu vöruna eins
nákvæmlega og þú getur á staðnum.
Heimtaðu kvittun og láttu
seljandann skrifa vörumerkið á
kvittunina, svo að enginn vafi geti
leikið á ábyrgð hans ef síðar kemur í
ljós að varan sé fölsuð.
Með þvl að vera varkárir neytendur
komum við ekki aðeins í veg fyrir að
við kaupum rusl, heldur takmörkum
við um leið þá eyðileggingu sem hinir
réttu framleiðendur verða fyrir.
Þeir bjóða okkur vörur í gæðaflokki
og afla hundruðum manna atvinnu.
★
Amma mín er örlynd og fljótfær en afi aftur á móti rólegur og varkár.
Nótt eina vöknuðu þau upp við hávaða í hænsnahúsinu. Amma rauk
fram úr rúminu, hljóp að hænsnahúsinu og fann orsök ólátanna,
stóran, svartan snák. Þar sem hún hafði ekkert til að vinna á honum
með steig hún berum fæti ofan á hausinn á honum. Þannig stóð hún
þangað til afi kom rúmum fímmtán mínútum seinna. Hann var
alklæddur og hafði meira að segja komið vasaúrinu fyrir á sínum stað.
, Jæja,” sagði hann glaðlega við úfna og reiðilega konu sína, ,,ef ég
hefði vitað að þú varst búin að ná honum hefði ég ekki flýtt mér
svona.”
M.R.