Úrval - 01.01.1982, Page 74

Úrval - 01.01.1982, Page 74
72 ÚRVAL Malcolm Cowley er bókmenntafrœÖingur og hefur gefið út ellefu bækur. Þegar hann varð áttræður komst hann að því að ,,í landi ’’ hinna áttræðu horfir ýmislegt öðruvtsi við. AF SJÖNARHÖLI ÁTTRÆÐS — Malcolm Cowley — * * * * * * * 5H.5K5KÍÍÍ5K AÐ var haldið upp á átt- ræðisafmælið mitt. Það komu kort, bréf, skeyti, gjafir og þar var meira að segja stór kaka með tveim kertum á, hvernig sem á því stóð (var ég aftur orðinn barn?). Mér finnst að það eigi að halda upp á sérstaka viðburði eins og til dæmis áttræðisafmæli. Sá áttræði kemst á nýtt þrep í tilverunni, jafnframt því sem síðasti þáttur lífsins hefst — ekki síst þess vegna á að halda afmælis- veislu svo hann (eða hún) hefji þenn- an lokaþátt með pompi og prakt. Þegar fólk er orðið áttrfett eru jafn- aldrar þess mjög lág prósentutala af íbúum landsins. Kannski, lesandi góður, fyllir þú einhvern tíma þenn- an hóp ef þú sleppur við hjartaáfall og krabbamein — sem höggva stærstu skörðin — eru með öðrum orðum aðalböðlarnir. Langar þig að vita hvað er í þessu nýja ,,landi”? Hér er mitt sjónarmið, svo sem eins og vegakort. Þeim áttræða finnst hann jafn- sterkur og hann hefur alla tíð verið á meðan hann situr í þægilegum stól. Hann rifjar upp, dreymir og lætur hugann reika. Honum finnst að aldurinn sé gervi fyrir aðra, hið sanna sjálf eldist ekki. Eftir smástund ætlar hann að rísa á fætur og rölta út í skóg,

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.