Úrval - 01.01.1982, Blaðsíða 77
AF SJÓNARHÓLIÁTTRÆÐS
Það er alltaf ákveðið skipulag með í
taflinu þó að við komum ekki alltaf
auga á það í skranhrúgu áranna.
Getum við vinsað draslið frá og fylgt
söguþræðinum eftir, köflum og
hléum? Getum við verið aðalleikarar,
hver í sínu verkinu? Er það vegna þess
að sum hafa það sem önnur skortir að
við erum svo ólíkir leikarar?
Kannski verður ekki hægt að fá svat
við þessum spurningum en nokkur
einföld atriði gera leitina að svarinu
auðveldari, svo sem að lesa gömul
bréf, skeyta minningarnar saman,
teikna myndir og rifja upp lagstúfa.
75
Þetta getur orðið bók með mjög
hreinskilnum og einlægum minning-
um; gamalt fólk hefúr engu að tapa
með því að segja sannleikann. Fyrir
aðra eru það bara þankabrot og ráð til
þeirra yngri sem annaðhvort verða
munuð eða gleymast. Það skiptir ekki
máli: erfiði okkar hefur ekki verið til
einskis ef það hefur orðið til að stað-
festa gildi okkar. Að lokum getum
við sagt við heiminn, eða sjálf okkur
ef enginn vill hlusta: ,,Ég var" — eða
kannski með enn meira sjálfsöryggi:
, ,Ég var þetta. ' ’ ★
íööflöisA
Fyrirtæki í Japan er að setja á markað skoskt viskí í duftformi sem sagt
er hafa bragð og eiginleika þess sem rennur. Sölustjórinn, Toshio
Nishiuchi, segir að duftdrykkir ættu að falla þeim vel sem finnst
óþægilegt að kaupa og bera vín í fljótandi formi.
En Jeffrey Wormstone, málsvari sambands viskíframleiðenda í
London, segir að framleiðendur hins hefðbundna viskís séu ekki
smeykir. „Við höfum góða aðferð við að flytja viskí. Við notum til
þess flöskur.”
— Globe
Réttur í Vestur-Þýskalandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að til-
tektardagur fyrir einhleypar starfandi konur — sem er í lögum fímm
ríkja — eigi einnig að ná til einhleypra karlmanna. Árið 1977 fór
Ferdinand Muck, starfsmaður sjúkrahúss, fram á að fá tiltektardag en
fékk synjun. Hann fór í mál. Nú fær Muck eins dags frí á fullum
launum mánaðarlega tii að taka til heima hjá sér.
— UPI
I