Úrval - 01.01.1982, Page 83

Úrval - 01.01.1982, Page 83
REIMLEIKARNIR í U-65 81 þar var raunar Peterson, klúkandi úti í horni, mun verr á sig kominn en Schmidt. Við þolinmðða yflrheyrslu kom í ljós að hann hafði séð svip látna aðstoðarforingjans koma upp land- ganginn, skálma fram á stefni og standa þar með krosslagða handleggi og stara á haf út. Peterson hafði flýtt sér að fela sig í skotinu þar sem hann nú var. Þegar hann vogaði að gægjast fram aftur var svipurinn horfinn. Kafbátsforinginn var skynsamur og sanngjarn. Hann sá í hendi sér að hvorugur þessara manna var drukk- inn. Það leyndi sér ekki að þeir höfðu séð eitthvað — en hvað? Kafbáts- foringinn hafði aldrei trúað á tilvist drauga og ætlaði sér ekki að taka upp á því núna. Hann taldi að annaðhvort væri einhver að gera meinlegan hrekk eða beinlínis að grafa undan jafnvægi áhafnarinnar. Hann rannsakaði alla möguleika, yfirheyrði alla sem kynnu að hafa haft aðgang að U-65 og kannaði hvað skipverjarnir hefðu haft fyrir stafni þennan tíma. En hann fann hvergi neitt sem gæti stutt grun- semdir hans og hann neyddist til að láta málið niður falla. Ef einhver hefði verið hrekkja í illum tilgangi hlaut sá hinn sami að vera vel ánægð- ur því saga Petersons og Schmidts hafði svo sannarlega skotið skip- verjunum skelk í bringu. Peterson gat ekki hugsað sér að vera um borð í þessum báti. Tveimur dögum áður en leggja átti úr höfn hvarf hann þótt hann ætti þar með yfír höfði sér strangan dóm sem liðhlaupi. Tvö ár voru liðin síðan kjölurinn að U-65 var lagður. Þegar kom fram á árið 1917 voru bandamenn farnir að hafa yfirhöndina yfir kafbátum Þjóðverja. Þangað til þá um sumarið hafði skelfingin í kafinu fargað skipum Bretaí gífurlegum mæli. Eitt af hverjum fjórum skipum banda- manna, sem lagði úr breskri höfn í maí 1917, kom aldrei til hafnar. I apríl höfðu þýskir kafbátar sökkt 840.000 tonna flutningaskipaflota fyrir Bretum og bandamönnum þeirra. Um haustið var myndin orðin önnur. Fleiri skip voru smíðuð og það fyrirkomulag að láta skipin sigla í skipalestum sannaði ágæti sitt. Þjóðverjar þurftu að hugsa hratt og vel ef þeir áttu að vinna stríðið á haflnu og þeir höfðu ekki efni á að láta einn einasta farkost liggja við festar. Þess vegna var haldið áfram með U-65 þótt skip með svona sögu hefði verið gefið upp á bátinn á friðsamlegri tímum. Á nýársdag 1918 sigldi U-65 frá Helgolandi til Zeebrugge þar sem hann var um kyrrt í ríu daga. Áhöfn- inni til ósegjanlegs léttis gerðist ekkert. Hún vonaði — og var farin að halda — að heppnin hefði snúist á sveif með henni með áramótunum. Síðan kom skipun um að sigla inn í Ermarsund í leit að kaupskipum og fískiskipum. Það var óþokkaveður að kvöldi 21. janúar þegar U-65 kom upp á yfir- borðið. Fárviðri var að skella á og minnstu munaði að öldurnar skyllu

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.