Úrval - 01.01.1982, Side 90
88
ÚRVAL
dags ef þörf krefur. Það skaltu nú
gera og gjalda þannig guðlasts þíns.
Þú skalt hvorki nærast, svala þorsta
þínum, sofa, né heldur skaltu framar
sjá heimahöfn þína-heldur berast um
höfín sjö sem illur forboði allra þeirra
sem sjá til ferða þinna. Guð lætur
ekki að sér hæða, Vanderdecken skip-
stjóri!”
Þannig atvikaðist það að allt síðan
þessa nótt hefur hrollur farið um
sjómenn og þeir hafa krossað sig
þegar þeir sjá draugaskip rísa upp úr
öldunum, með toppmastrið fyrst, á
siglingaleiðunum umhverfis Horn-
höfða og Góðrarvonarhöfða eða
jafnvel enn sunnar. Frásögnum um
útlit skipsins ber þó ekki saman.
Stundum birtist það sem slúppa (ein-
möstruð skúta) og stundum sem
skonnorta. Áhöfnin á Bacchante, sem
1881 sigldi milli Melbourne og
Sidney, sá skipið sem briggskip. Þá
var ungur maður um borð 1
Bacchante. Hann varð síðan
konungur í Bretlandi, George V.
Hann staðfesti það sem skráð var um
þennan atburð í dagbók skipsins:
,,Hollendingurinn fljúgandi fór
fyrir framan skipið hjá okkur. Frá því
stafaði einkennilegu, rauðu ljósi, eins
og af glóandi draugaskipi, og í þessu
einkennilega en sterka ljósi mátti
greinilega sjá möstrin, rárnar og
seglin í um tvö hundruð jarda fjar-
lægð . . . þegar þangað kom var ekki
tangur eða teiur að sjá af neinu efnis-
legu skipi. hvorki þar né nær eða fjær
á nokkurn veg, allt að sjónarrönd, og
var nóttin þó björt og veður kyrrt.
Þrettán manns allt í allt sá þessa
sjón.”
Einn þeirra, sjómaðurinn sem fyrst
kom auga á draugaskipið, féll af
krosstrénu í framsiglunni niður á
þilfarið og hlaut bana af. Þegar
Bacchante kom í höfn næst lagðist
aðmírállinn sem um borð hafði verið
banaleguna. Bölvun Hollendingsins
var enn í fullu gildi.
Sagt er að draugaskip á borð við
Hollendinginn fljúgandi hafi birst
hvalveiðiskipi út af Reykjavík árið
1911- Þá sigldi hann seglum þöndum
í stafalogni og munaði minnstu að
hann rækist á hvalveiðiskipið. Um
leið og hann sveif hjá heyrðust þrjú
klukkuslög innan úr skipinu og um
leið sveigði það krappt á stjórnborða
og hvarf. Ekki er þess getið að neinar
ófarir hafi fylgt í kjölfar þessarar
sýnar.
Annar Hollendingur sem enn
flakkar um höfin er Bernard Fokke
skipstjóri, samtímamaður Vander-
deckens. Hann var mikilhæfur sjó-
maður en hafði á sér slæmt orð; sagt
var að hann væri í slagtogi með skratt-
anum. Þegar skip hans hvarf var sagt
að djöfullinn hefði dæmt hann til að
sigla að eilífu. En það þarf ekki endi-
lega að vera illur fyrirboði að sjá
hann. Sagan um Bernard Fokke og
sagan um Waleranbræðurna tvo í
Falkenbergkastala í Neðri-Lorraine
hafa iðulega blandast saman við
söguna af Vanderdecken og illt er að
greina hvað er hvað.