Úrval - 01.01.1982, Page 92
90
ÚRVAL
En kona var þó eftir, í felum undir
þiljum. Sumar sögur segja að það
hafi verið ung móðir sem týnt hafi
barni sínu í djöfulganginum. En það
var skelfilegt hljóð sem hrakti hana
fram úr felustað sínum: snarkið í eldi.
Þjófarnir lögðu eld í Paladine þegar
þeir höfðu ruplað úr því að lyst sinni.
Nú rak skipið til hafs og aumingja
unga konan var ein eftir um borð.
Hún kleif upp á borðstokkinn og stóð
þar hrópandi á hjálp meðan logarnir
færðust sífellt nær henni. Svo hrundi
mastrið, þilfarið féll niður og stúlkan
hvarf í bálið. Enn sést skipið endrum
og eins á þessum slóðum og alltaf er
unga konan að hrópa á hjálp meðan
eldurinn iýsir um strendur Block-
eyjar. En hinir tortryggnu segja að til
sé eðlileg skýring á þeirri birtu —
kannski fosfór.
Annað brennandi skip er Packet
Light sem fórst eins og Paladine á St.
Lawrenceflóa. Packet Light birtist
alltaf fyrst eins og eldhnöttur.
Ekki eru allir fyrirburðir illur fyrir-
boði. Sumir em, eins og stallbræður
þeirra áþurrulandi, sendir til að veita
hjálp eða tímabærar viðvaranir.
Rogers, skipstjóri á Society, prísaði sig
sælan að þiggja þannig hjálp árið
1664. Society var á ferð meðfram
austurströnd Ameríku, á leið til
Virginiu, og allt sýndist í stakasta
lagi. Skipstjórinn gekk til hvílu þar
sem hann sá ekki ástæðu til þess að
vera sjálfur á vakt. Hann féll í fasta-
svefn en hrökk upp við að eitthvað
kalt kom við öxlina á honum. Um
leið heyrði hann rödd sem sagði:
,,Rístu upp, kafteinn, og líttu í
kringum þig.” Skipstjórinn varþegar
glaðvakandi. Hann hentist upp — en
það var ekkert athugavert að sjá svo
hann hallaði sér aftur. Um leið og
honum seig í brjóst heyrði hann
röddina á ný og fann snertinguna.
Hann kannaði málið aftur en sá
ekkert tortryggilegt. Honum taldist
til að skipið væri um þrjú hundruð
mílur frá landi og gæti ekki stafað
hætta af skerjum eða grynningum á
þessum slóðum. En þriðja viðvörunin
lét ekki á sér standa og að þessu sinni
sagði röddin, skýrt og greinilega:
,,Farðu upp og lóðaðu!” Rogers
hlýddi — og uppgötvaði sér til
skelfmgar að dýpið var aðeins sjö
faðmar. Hann lét í skyndi varpa
akkerum. Þegar birti kom í ljós að
Society var komið rétt upp í land-
steina við Virginluhöfða í stað þess að
vera langt úti á sjó. Fyrirburðurinn
hafði bjargað skipinu frá tortímingu.
Annar heppinn skipstjóri var
Joshua Slocum. Hann var gamal-
reyndur sjómaður sem hafði unnið sig
upp frá því að vera liðléttingur upp í
að stýra sínu eigin skipi.
En skipið fórst og Slocum neydd-
ist til að draga fram lífið í tvö ár með
vinnu í skipasmíðastöð í Boston. Svo,
árið 1892, gaf skipstjóri á hvalveiði-
skipi honum litla, gamla slúppu sem
hét Spray. Spray var 1 lélegu ásig-
komulagi, hafði legið sjö ár á fjöru-
kambi, og Slocum sór þess eið að gera
fleytunni nýjan kjöl og byrðing. Eftir