Úrval - 01.01.1982, Page 93

Úrval - 01.01.1982, Page 93
DRAUGASKIP 91 þrettán mánaða strit var Spray svo gott sem nýtt, ef ekki betra. Þá tók Slocum til handargagns gamla doríu og breytti henni í björgunarbát fyrir Spray. Síðan skipaði hann birgðum og búnaði um borð og 1. júlí 1895 lagði hann upp frá Yarmouth í Massachussetts í siglingu umhverfís jörðina. Þetta var einmanaleg ferð, jafnvel fyrir viljasterkan mann eins og Joshua Slocum. Hann hafði ofan af fyrir sér með því að kalla spurningar til ímyndaðrar áhafnar, aðallega um hvernig ferðin gengi, og svara sér sjálfur: ,,Allt vel, herra, allt vel!” Auðvitað hafði hann endrum og eins samskipti við fólk — sérstaklega á eynni Fayal í Azoreyjaklasanum þar sem hann fékk sérlega góðar viðtökur og margar gjafír: mikið af ferskum ávöxtum og gríðarstóran, hvítan ost. Ung kona bauðst til þess að koma með honum fyrir lítið kaup og sjá um matreiðslu og þess háttar um borð. Slocum afþakkaði það kurteislega og lagði af stað til Glbraltar. En svo freistandi voru krásirnar sem fólkið í Fayal gaf honum að fyrsta daginn í hafí gerði Slocum fátt annað en kýla vömbina. Það er varla að undra að þessi langvarandi veisla með plómum og hvítum osti fór ekki vel í maga heldur leiddi til voðalegra krampaverkja 1 maga. Meðan Slocum barðist þannig við magaverkina tók að hvessa. Hann skreiddist við illan leik upp á þilfar til að rifa seglin. Að því búnu batt hann stýrið fast og komst einhvern veginn aftur í klefa sinn þar sem hann lá á gólfínu og engdist sundur og saman af kvölum. Loks féll hann í ómegin. Þegar hann kom til sjálfs sín aftur skoppaði Spray eins og korktappi á öldunum. Slocum vissi að hann yrði að taka stýrið en eins og ástatt var fyrir honum virtist einsýnt að hann hefði ekki krafta til þess. En hann skreiddist samt upp. Þegar þangað kom sá hann sér til undrunar að við stýrið sat hávaxinn, ókunnur maðurí framandi klæðum. Sá ókunni tók þegar ofan og brosti eins og ekkert væri sjálfsagðara en að hann væri þarna og kynnti sig sem stýrimanninn af Pinta, einu skipanna sem lagði upp í flota Kólumbusar í leit að vestur- leiðinni í ágúst 1492, rúmum fjórum öldum fyrr. Hann sagði Slocum að fara aftur til klefa síns og hvílast, hann skyldi stýra Spray. Slocum var svo veikur og aðfram- kominn að hann gat ekki hugsað skýrt. Þess vegna þótti honum þetta ekkert skrýtið heldur þáði boðið með þökkum og bað þessa hjálparhellu sína að vera kyrra um borð til næsta dags. Sá framliðni svaraði með glað- klakkalegu brosi og lét þess getið að það væri aldrei skynsamlegt að borða saman plómur og ost — eða yfirleitt nokkurn tíma hvítan ost án þess að þekkja gjörla uppruna hans. Og Spray komst klakklaust til Gíbraltar. Johansen frá Liverpool varð fyrir áþekkri reynslu árið 1900 á ferð sinni

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.