Úrval - 01.10.1982, Blaðsíða 6
4
ÚRVAL
,,Nú, það verður að minnsta kosti
til þess að auka lánstraust okkar,”
svaraði Udom, ,,þó ekki verði það til
annars.
Kaupsýslumennirnir í City í
London myndu hafa fyrirlitningu á
aðgerðum þessum líkum en í Thai-
landi er hjátrúin eðlileg og sjálfsögð í
augum fólks. Engin átök eru milli
rétttrúnaðar í Thailandi og hjátrúar.
Thailendingar blanda auðveldlega
saman Búddhatrú, Brahmatrú, sem
barst til landsins fyrir mörgum öld-
um frá Indlandi, og trúnni á anda og
annað álíka.
Þeir drekka í sig allt sem lýtur að
stjörnuspáfræði, lófalestri, svipfræði,
fjarhrifum og sömuleiðis það sem
tengist dulrænni þýðingu varta og
hnerra. Töfragripir skipta þá miklu
máli, sem og alls konar verndargripir,
töfrajurtir, rætur og heilsudrykkir.
Og góðir og illir andar eru Thailend-
ingum ekki síður hug-leiknir.
Sjáandinn
Siamerican Mining Enterprise,
fyrirtækið sem við Udom eigum í fé-
lagi við tylft annarra manna, byggir
tilveru sína á trú manna á hið yfir-
náttúrlega. Árið 1961 gengum við
Udom á fund eins þekktasta sjáanda í
Thailandi, Búddha-munksins Keo,
sem hefur aðsetur í hofi við Bang
Saen sem er þorp við Thailands-flóa.
Hann var einkasjáandi forsætisráð-
herrans og hann þjónaði sömuleiðis
öllum helstu kaupsýslumönnum í
Bangkok.
Keo leit í hægri lófann á Udom og
spurði hvenær og klukkan hvað hann
færi á fætur. Síðan skrifaði munkur-
inn niður fáeinar tölur og var nú
greinilega að gera einhverja stjarn-
fræðilega útreikninga. Nokkrum
mínútum síðar leit hann aftur á
Udom og drundi: ,,Þú munt finna
auð neðanjarðar. ”
Udom virtist furðu lostinn þegar
við ókum aftur til Bangkok þetta
sama kvöld. Gamall kunningi hans
hafði verið að reyna að vekja áhuga
hans á antimoniu-námu f Ban Song
við suðurströndina í nánd við landa-
mæri Malaysíu. (Antimonia
cr málmsamband sem finnst oft á
sömu stöðum og gull og kaika-silfur.)
Efasemdir Udoms um hvort hann
ætti að leggja í þetta ævintýri hurfu
nú eins og dögg fyrir sólu. Skömmu
síðar var hann búinn að stofna
Siamerican Mining Enterprise.
Þegar Udom fór að leita að sam-
starfsmönnum og aukafjármagni
benti Keo honum á að til væri maður
sem hentugt væri að fá til þess að fjár-
festa í fyrirtækinu og væri sá fæddur á
ári hundsins. Og mikið rétt, mikill
eignamaður frá Honolulu skaut allt í
einu upp koliinum í Bangkok og
bauðst til þess að kaupa hlutabréf í
fyrirtækinu. Udom spurði hvenær
hann væri fæddur. Hann var fæddur
á ári hundsins.
Keo sat í hofi sínu og gluggaði f
kort af námusvæðum og benti loks á
ákveðinn stað þar sem hann sagði að
ætti að grafa. Udom fór ekki eftir ráð-