Úrval - 01.10.1982, Side 64
62
ÚRVAL
sem sér ofsjónum yfir velgengni ann-
arra verði grænn af öfund. Og nú eru
vísindamenn að uppgötva að vissir
litir hafa svo sannarlega gagnger áhrif
á líf okkar og hegðun.
Hugaraugun
Hvað er litur? Fyrir fáum árum
hefði vísindamaðurinn sennilega
verið fljótur að svara að litur sé orka
— rafsegulmögnuð ljósorka sem berst
um rúmið með ákveðinni bylgju-
lengd. Samkvæmt þessari skilgrein-
ingu berst Ijósið, sem við köllum
rautt, í jaðri regnbogans með bylgju-
lengd — vegalengdinni milli bylgju-
falda í bylgjuhreyfingu — sem er um
617 nanómetrar (og nanómetri er
einn milljarðasti úr metra — einn
milljónasti úr millímetra). Bláa ljósið
í regnboganum bylgjast á 470 nanó-
metrum. Mitt á milli titrar það græna
á 532 nanómetrum. Þegar þessir þrír
frumlitir blandast í jöfnum mæli
skynjum við það sem hvítt ljós. Þegar
rautt og grænt ljós blandast saman
verður það gult. Þegar bláu og rauðu
ljósi er blandað saman kemur litur
sem kallast magenta (blárauður), blár
og grænn mynda cyan (blágrænan).
Þessir vísindamenn segja að augu
okkar hafi einfaldlega hæfileikann til
að skynja og þekkja þessar bylgju-
lengdir ljóssins sem hlutirnir í
kringum okkur endurspegla eða gefa
frá sér.
En þessi skilgreining á litum er of
einföld að sumra dómi. Litir, segja
þessir vísindamenn, er ekki bara
nokkuð sem verður til í auganu
heldur einnig í hugum þeirra sem sjá
þá.
Þegar Edwin H. Land, sá sem upp-
götvaði Polaroidfilmuna og nú er for-
maður Polaroidfyrirtækisins, var
ungur vísindamaður heillaðist hann
af litum. Hann velti því fyrir sér
hvernig á því stæði að mynd, sem
tekin er í rauðri glóð tungstenljóss,
sýnir umhverfi og hluti með rauð-
leitum blæ — en þegar við horfum á
sömu fyrirmynd með okkar eigin
augum í sama ljósi eru appelsínur
bara appelsínulitar, bananar gulir,
blátt bollastell blátt. Hann komst að
þeirri niðurstöðu að augu okkar og
heili hafi sérkennilegan hæfileika til
að ,,mála” heiminn í „réttum”
litum f kollinum á okkur sjálfum,
jafnvel þegar bylgjulengdir ljóssins,
sem litar heiminn umhverfis okkur,
breytast allt í einu eða hverfa að
hluta.
Innri augu
Hvernig skynjum við þá þessa liti?
Vísindamenn eiga enn eftir að gefa
fullnaðarsvar við því en nýlegar upp-
götvanir hafa veitt merkilega innsýn í
það flókna ferli sem felst í starfsem-
inni sem við köllum sjón.
Linsan í auganu — sjáaldrið —
stillir ljósið sem við sjáum í rétta
skerpu (þannig að við sjáum hlutinn
skýrt en ekki bjagaðan eins og
gegnum rangt stilltan sjónauka, —
augað er sífellt að rétta dýptina af
þannig að við sjáum skýrt) sem fellur
i