Úrval - 01.10.1982, Síða 107

Úrval - 01.10.1982, Síða 107
ORLÁ GÁSWND 105 hafði ég glatað getunni til að hugsa. Varðmennirnir voru farnir að tæta sundur hvaðeina í herberginu með ofsa sem lamaði mig. Fyrst datt mér í hug að þetta væri leit en ég heyrði aðeins þegar vefnaður var rifinn og harðara efni brotið. Hendurnar á mér skulfu eins og á riðusjúklingi. Hægri handleggurinn var orðinn svo ógnarlega þungur að ég gat ekki haldið honum að veggn- um lengur. ,,Dastet balal" öskraði einn varðanna. ,,Upp með hendur!” Hann keyrði byssuna í bakið á mér. Skothylki datt skröltandi á gólfið. Hafði ég verið skotinn? Það skipti ekki máli lengur. Eg var feginn að þessu var lokið. Hugur minn var sem auður og líkaminn magnþrota. Eftir það sem virtist heil eilífð var okkur skipað inn í herbergið aftur. Ég þumlungaði mig að dyrunum eins og barn sem tekur sín fyrstu spor. Herbergið var í rúst. Ég svipaðist um eftir myndunum af Barböru og börnunum sem höfðu fleytt mér gegnum marga erfiða stundina. Margar af þeim sem höfðu mest gildi fyrir mig, þar á meðal brúðkaups- myndin, voru horfnar. Laufið mitt var einnig horfið úr bókinni og ég þrábað — árangurslaust — um að fá það aftur. Seinna frétti ég að einn okkar hefði reynt að fyrirfara sér. Verðirnir voru að leita að hverju því sem hinir kynnu að geta notað til að stytta sér aldur. Þegar sjúkdómur minn skánaði svo að ég gat farið að hugsa eitthvað gerði þessi sjálfsmorðstilraun mér ljóst að sumir gíslanna þjáðust meira en ég. Það var sama hve illa mér leið lfkamlega, ég fylltist aldrei að kalla þeirri örvæntingu sem kemur mönnum til að reyna að farga sér. Jafnvel þegar ég vonaði að ég fengi að deyja hvarflaði aldrei að mér að gera það sjáifur. Vinsældir Barbara: Þegar jólin nálguðust gerðum við okkur grein fyrir því að ekkert gekk í þá áttina að fá gíslana lausa. Ég fann að innanríkisráðuneytið var farið að óttast að fjölskyldur einhverra gíslanna myndu fara að gagnrýna tök stjórnar- innar á málinu. Það var kominn tími til að fara að róa ,,móðursýkina”, eins og einn forsvarsmanna ráðuneytisins orðaði það. Fundur var fyrirhugaður og farmiði til Washington og aftur heim sendur hverri fjölskyldu. Fundinn átti að halda í húsa- kynnum innanríkisráðuneytisins sem var nóg til að gera mig taugaóstyrka. Ég hafði alltaf átt nógu auðvelt með að túlka sjónarmið mín fyrir Barry og foreidra mína. En það gat tekið mikið á mig að hitta nýtt fólk, sérstaklega þegar þeir samfundir voru að e!n- hverju leyti opinberir. Ég hafði meistaragráðu í kennslu og talsverða kennslureynslu. Ég var þrítug móðir tveggja barna og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.