Úrval - 01.10.1982, Side 127
, GLEYMDA STRÍÐIÐ' ’ íMAROKKÓ
125
nyrstu tvo þriðju hlutana af Vestur-
Sahara. Suðurhlutinn féll í skaut ná-
grannaríkinu, Máritaníu.
Þessi lausn reyndist ekki verða til
mikils. Upphaf ósamkomulagsins var
að fínna allmörgum árum áður þegar
smáhópar Saharabúa skipulögðu með
sér það sem í dag gengur undir nafn-
inu Polisario (Popular Front for the
Liberation of Saguia el Hamra and
Rio de Oro). Markmið þessara sam-
taka var að Vestur-Sahara yrði frjáls
undir marxiskri stjórn.
Hefði illa þjálfaður her Máritaníu
látið betur að stjórn og hermenn
Marokkó farið gáfulegar að þegar þeir
reyndu að ná þarna yfirráðum hefði
vel getað farið svo að hirðingjaþjóð-
irnar á þessum slóðum hefðu hafnað
Polisario. En Polisario var þegar farið
að skipuleggja flótta íbúanna til Alsír
þar sem herskáir meðlimir Reguibat-
þjóðflokksins og spánskir Sahara-her-
menn voru meginuppistaðan í bar-
dagaliði Polisario.
Þúsundir flóttamanna söfnuðust
saman í búðum við Tindouf í nánd
við landamærin. Þar kom Polisario
upp útlagastjórn — Sahara-arabíska
lýðveldinu (SADR). Yfir 40 ríki
þriðja heimsins hafa nú viðurkennt
SADR. Þau eru andsnúin stefnu
Marokkó sem er hliðhollt Vesturveld-
unum en mjög andsnúið Sovétríkjun-
um. Meðal háværustu stuðnings-
mannanna eru Alsír og Líbýa.
Polisario varð fljótlega sterkt
baráttuafl undir vernd Alsír. Liðs-
menn Polisario vom vel vopnum bún-
ir, ferðuðust um í Land-Rover-bílum
og erfitt var að fylgjast með ferðum
þeirra. Þeir réðust gegn einangruðum
varðstöðvum Marokkó, gerðu árásir á
flutningaleiðir Marokkó og Máritaníu
og réðust inn í bæði þessi lönd.
Átökin höfðu alvarlegar efnahags-
legar afleiðingar fyrir Máritaníu. Svo
gerðist það í júlí 1978 að herinn velti
úr sessi borgarastjórn landsins sem
setið hafði að völdum í 18 ár. Polis-
ario færði sér þetta strax 1 nyt og lýsti
yfir einhliða vopnahléi við Máritaníu
sem um leið afsalaði sér öllum rétti
yfir Vestur-Sahara. Marokkó stóð nú
eitt uppi, skilið frá bandamönnum
sínum í Sahara.
Ahmed Dlimi hershöfðingi og yfír-
maður Marokkó-herjanna í suðri
hreinsaði til 1 bækistöðvum Polisario
og safnaði óbreyttum borgurum sam-
an á stöðum þar sem hægt var að veita
þeim vernd. Síðan lét Dlimi reisa um
650 kílómetra langan varnargarð sem
lá allt innan úr landi frá borginni Zag
og að Atlantshafsströndinni suður af
E1 Aaiun.
Garður þessi er 3 metra hár, gerður
úr mold og sandi, en fyrir framan
hann er skurður, þriggja metra djúp-
ur. Gaddavír og girðingar, sem raf-
magn hefur verið leitt í, standa á
veggnum og allt er þarna krökkt af
fallbyssupöllum og byrgjum, auk
þess sem jarðsprengjum hefur verið
komið fyrir, og varðmenn eru þarna
stöðugt á verði.
Innan við þennan vegg eða varnar-
garð má segja að Polisario sé ekki