Alþýðublaðið - 24.12.1925, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 24.12.1925, Qupperneq 1
 1925 ASfangadasr jóla, Jólablað ,,BIessaöur sé sá, sem kemur í nafni drottinsT' Jólahugleiðing eftir séra Ingimar Jónsson, prest að Mosfelli. Sialdan hefir von og eftirvænt- ing fylt heiminn eins og á vorum tímum. Vér fínnum, að eitthvað nýtt parf að koina. Vér horfum til að vita, hvort vér sjáum ekki þann, sem komi með hið nýja, mikilmenni, mann af guði send- an. En jþó hefir um leið skeð það, sem merkilegt má telja, að menn hafa aftur tekið að líta tii Jesú meir en nokkru sinni áður. £>ar, sem talað er um hann, hiusta menn á. Bækur, sem fjalla um hann, eru lesnar af þúsundum, já hundruðum þúsunda úti í stóru löndunum. Skáld þekkja ekki ann- að æðra viðfangsefni en að tala um hann, svo að samtíðin skilji. Málarar leggja list sína fyrir fæt- ur honum, eins og vitringarnir úr Austurlöndum færðu honum forð- um gull, reykelsi og myrru. Jafn- vel þeir, sein hneykslast á nafni Jesú, geta ekki stilt sig urn að hugsa um hann, þó að það sé ekki nema til þess að grafa upp gamla lygi um hann og breiða út gainla heimsku sem nýja vizku. Engin orð megna að lýsa að- dráttarafli hans. Sálirnar finna, að hjá Jesú er það orð, sem oss vantar, að þar er oss sýnd leiðin, sem liggur inn í hinn nýja lieim. Þannig koma þeir til Jesú aft- ur, fulltrúar allra þeirra andlegu stefna, sem leiða mannkynið. Þeir koma til hans með gömlu Jó- hannesar-spurninguna: „Ert þú sá, sem koma á, eða eigum vér að vænta annars?“ Þar koma þeir allir, sem vonast eftir nýjum trú- arbrögðum, og þeir eru ekki svo fáir nú á dögum. Sumir eru skrumarar, sem reyna að ná eyra fólksins, en sumir eru alvarlega hugsandi menn, og þeir koma oft til Jesú og spyrja: „Það myndi þó ekki vera þú, sem vér erum að leita að?“ Þeir dást að Jesú, en þó svara þeir sjálfum sér því, að Jesús geti ekki orðið leiðtogi þeirra. Hann var barn síns tíma og því of gamaldags fyrir oss. Þeir vilja fá nýja opinberun, sem betur samsvari tímanum. Annar hópur kemur til Jesú. Það eru þeir, sem vilja umskapa siðaboð mannkynsins. Frelsi ein- staklingsins eru einkunnarorð þeirra, frelsi og styrkur. Þá vant- ar frelsara handa hinum sterku. Þeir koma líka til Jesú, því að þeir verða þó að játa, að hann sé mestur þeirra, sem af konu eru fæddir. Þó er margt hjá honum, sem þeim geðjaðist ekki að. Þeir heyra þar meira talað um sjálfs- afneitun en um frelsi; í stað þess að njóta heimsins er krafa um aþ sigrast á heiminum. Og þó finna þeir, að frelsishugsjón þeirra er réttmæt, en þeir geta ekki sam- rýmt þetta. Og sumir þeirra elska Jesúm og vilja ekki sleppa hon- um. Þeir spyrja, en hálf-kvíðandi: „Ert þú sá, sem koma á, eða eig- um vér að vænta annars?“ Þriðji hópurinn kemur til Jesú. Það eru þeir, sem hafa áhuga á þjóðfélagsmálum og vonast eftir endurnýjungu mannlífsins og meiri sælu fyrir alla. Þeir vilja bjarga þeim verst settu og koma þeim upp í ljósið. Þá vantar frels- ara handa lítilmagnanum. Þeir myndu gera hann að konungi, því að hann hefir gert það, sem þeir óskuðu. Hann hefir boðað rétt líf- ilmagnans, fátækum fagnaðarer- indi, stofnað bræðralag meðal mannanna og boðað sælunnar ríki. En þeir eru líka í vafa. „Hvers vegna hefir hann ekki fyrir löngu hjálpað og rejst guðsríkið upp dýrlegt hér á jörðu? Getur hann hjálpað ? Verða þeir ekki að hjálpa sér sjálfir, sem vilja end- urbætur? Verður þjóðin ekki að vera sinn eiginn frelsari ? Mun ekki framþróunin færa oss fram- tíðarríkið ? Er það ekki fremur vísindin en trúin, sem sýnir oss, hvert stefna ber?" Þannig tala þeir, og þó eru störir flokkar manna víðs vegar um heim, sem hugsa um þessi mál og vonast eftir játandi svari, þegar þeir spyrja: „Ert þú sá, sem koma á? Þú hlýtur að vera það; annars týnum vér sjálfum oss í myrkrinu, sem vér göngum í,“ En það er,u ekki að eins þessir þrir flokkar leitandi manna, sem spyrja. Það eru niargir, sem finst ástæða til að spyrja eins og Jó- hannes. Vér horfum á, hverju kristindómurinn fær áorkað, og stundum liggur við, að oss finnist vér verða fyrir vonbrigöum. Vér fyllumst hryllingi við að lesa fréttir um hermdarverk, sem Tyrk- ir vinna á kristnum mönnum, en þó hreyfa kristnu valdhafarnir hvorki hönd né fót, vegna þess, j að þeir óttast, áð það verði óvin- ! sælt að skifta sér af því. En hitt

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.