Mímir - 01.11.1986, Síða 21
kveikti og heyrði gegnum veðrið að vélin fór að
urga einsog maður sem hrýtur á innsoginu. Ein-
hvern góðan veðurdag ætla ég að fá mér tölvu,
hugsaði ég - samt þykir mér eiginlega soldið
vænt um þennan gamla rokk. En ef maður ætlar
að sigra Tímann verður maður líklega fyrst að
sigrast á Tækninni - eða er það kannski öfugt?
Ég hló með sjálfum mér og strauk vélinni einsog
barni sem maður hefur dátla samúð með.
Og so fór ég að hugsa; geystist útá víðáttur
heilans í leit að orði. Orðinu. Regnið barði utan
húsið, skvettist frammaf þakinu, lamdist utaní
veggina, rann inní hverja glufu, holaði steininn
og ég veit ekki hvað. Trommararnir höfðu látið
deigan síga nokkur andartök en tóku nú við-
bragð og lúbörðu votar húðir sínar af fullkomnu
brjálæði; ritvélina mína setti hljóða í öllum
þessum hávaða en hugurinn - sá gamli rokkur -
lét ekki raska ró sinni í þeirri óbilandi trú að á
þessum degi yrðu örlög mannkyns ráðin. Jörðin
snérist og þungur skuggi féll á útskerið; ekkert
lát var á ofankomunni; vatnið helltist öskrandi
yfir landið, vindar hvæstu, eldar loguðu á
himnum. Og Sagan var að fæðast í huga mínum.
Hún reis og hneig á öldum hugsunarinnar, hún
breiddi úr sér milli endimarka Tímans - þaut
útúr framtíðinni útá hið takmarkalausa haf... já
þangað þaut hún. Hún hafði tekið á sig mynd
sem þandist út og varð að ógurlegum rauðum
risa en féll so saman í hvítan dverg og fór að
hverfast um lítinn þungan kjarna. Á meðan taldi
klukkan sekúndur mínútur og klukkutíma,
myrkrið þéttist; öskrandi og grenjandi börðust
höfuðskepnurnar um.
Alltíeinu hætti að rigna; ruslapokinn tómur og
ekki lengur svartur þráttfyrir myrkrið - jafnvel
ekki lengur ruslapoki; höfin orðin full af vatni.
Loftið var mettað óttablandinni kyrrð; megin-
öflunum hafði fyrirvaralaust runnið móðurinn,
trymblarnir annaðhvort læknast af æði sínu eða
drukknað í sjónum því ekkert heyrðist nema
urgið í ritvélinni. Og þegar ég slökkti var þögnin
algjör.
Dagsverki mínu var lokið. Ég var ánægður.
Mér hafði tekist ætlunarverk mitt. Mér hafði
tekist að stíga uppúr Tímanum - tekist að orða
Lífið, tekist að tengja saman Alla Menn. Ó þú
blessaði dagur! Ég hafði skapað endalaust verk;
Sagan var orðin til!
Á hillunni við hliðina á ritvélinni minni lágu
499 skjannahvítar óskrifaðar arkir. Meistara-
verkið var á blaðinu fyrir framan mig; áþví stóð:
Og
21