Mímir - 01.11.1986, Síða 33
Hannes Pétursson:
Lausar vísur úr ferðalögum
1.
í rútubíl á Stóra-Vatnsskarði sumarið 1979,
þegar halla tók austur af og sá til Víðimýrarsels,
Brekkuhúsa og þar fram eftir götum, varð þetta
til:
Hér hljóp Stebbi í Seli mýri og mó
með magakútinn tóman.
Hér var það sem Hjálmar gamli dó.
Og hér valt, as you know,
leigubíll í býsna góðum róman.
2.
Hjá Sveinatungu á norðurleið 1981, þar hafði
gengið yfir él fyrir stundu:
Hvítnað er nú í mel og mó.
Æ! mikið á Drottinn til af snjó.
En menn hafa séð það svartara,
nú, svo verður landslag allt bjartara!
í Miðfirði sama dag, nálægt Melstað. Þá var 1.
maí:
Þótt Miðfjörðurinn hafi breytt um brag:
byggðin öll í tæknialdar-stílnum,
þá koma þennan kröfugöngudag
Kormáksaugun svörtu móti bílnum.
3' .
í Skagafirði 1982:
Framar ekkert ég ineð vissu veit
og víst mun ævin skamma bráðum liðin,
en þegar ég kem í þessa bernskusveit,
þekki ég, raunar, gömlu stefnumiðin.
33