Alþýðublaðið - 24.12.1925, Síða 11

Alþýðublaðið - 24.12.1925, Síða 11
ALÞÝÐUBLAÐID 11 .löhannesar vísa er svo: Hringhenda, lykluö. Varpa hýði blómin blíð; burtu skríður snærinn. Yfir fríða fjallahlíð flögrar þýði blærinn. Fimta skáldið í röðinni er Jón Pétursson, en engin hans vísa er gallalaus, sem mergur er í. >essi kemst í námunda við góða vísu: Hringhenda. Heimsins læðist hula grá, happa’ er klæðir veginn. Skýja slæður skyggja á skygnið hæða megin. Er þá komið að Isleifi Gísla- syní. En hann er gamansamastur peirra allra og kveður smellið. Þessi má heita gallalaus. Rýmdi „klókur“ vonavöll viður „smókings“-spjara, þegar brókar-blúndu þöll brosin tók að spara. Næstur Isleifi er Jón S. Berg- mann. Og þarf .ckki að leita í hans vísum til þess að finna á- gæta stöku. Fer víða saman hjá honum bezta mál, óbrjáluð hugs- un, andríki og ágætt rím. Hér er sýnishorn: Yfir lífsins öldusog eftir blindri hending held ég inn á Heljarvog; hann er þrautalending. Hittir þá lesandinn Dýrólínu Jónsdóttur. Hún kveður svo, þeg- ar vel liggur á henni: Hringhenda. Greiða vindar gisin ský; geislar tinda lauga. Bjartar myndir birtast í bláu iindarauga. Þessi vísa er öll hástuðluð og er ein með hinum beztu, þótt á-in í tinda og lauga skelli saman. Nú verður að brjóta regluna frekar en áður. Kristján Sigurðs- son á ekki gallalausa vísu, sem taug er í. Þessi er hin fegursta: Hringhenda. Alt um kring til ununar árdags syngur harpa; Geislafingur glóeyjar gulli á lyngið varpa. Áherzlan liggur ekki á ar í gló- eyjar, héldur á gló. Einu atkvæði er aukið í síðustu ljóðlínu. En skáldfegurð vísunnar er mikil. Svo erfitt er að kveða galla- lausa vísu, að Andrés Bjarnarson á þarna ekki nema einar tvær, alt að því gallalausar: Vinda þengill viti fjær veltir skeiða grúa; hrannar engið ólmur slær upp í breiða múga. Ellefti maðurinn í röðinni er Gísli Ólafsson. Er hann kunnur að leikni nokkurri. Ber þessi vott um hana: . . Hringhenda. Nóttin styður stjórnvöl á. Stutt er friðar skíma. Draums í iðu hníga há hljómbrot liðins tíma. Vantar hér hástuðlun. En visan er eigi að síður gullfögur. Næsti maður er Kolbeinn Högnason. Err það skaði, hve lítt hann vandar búning um bezta efni. Þessi staka telst gallalítil: Hringhenda. Ægir kringum eyjarnr/r ótal hringi setti; geisla fingur glóeyjar gull á lyngið rétti. Stýra þeir hér nokkuð náið, Kolbeinn og Kristján. Sér þá loks framan í Þuru Árnadóttur. Hún er orðheppin, en hirðir ekki um að kveða lýtalaust. Þessi vísa væri nákvæmlega rétt kveðin, ef orðinu „langt“ væri slept. Úti kystust hann og hún; háðskur máninn glotti. Langt fyrir ofan Búrfells-brún Björninn veifði skotti. En ekki er þetta hin glæsilega hástuðlun, heldur fallstuðlun. Yngsti maðurinn rekur lestina Hann heitir Hannes Bjarnarson. En hann byrjar svo vel, að fyrsta vísa hans í kveri þessu er há- stuðluð og nærri gallalaus. Hún er þannig: Geislar bræða gaddinn senn; gróðrar ræður máttur. Lindir flæða; lifnar enn lífsins æðasláttur. Gallinn er sá, að sex err urga saman í einni Ijóðlínu, en mein er ekki að öllum. Hafi þessir höfundar allir beztu þakkir fyrir alt það, sem þeir hafa vel kveðið. Undirritaður hlakkar til að sjá Stuðlamál II og vonar, að Kon- ráð vinur sýni ekki nema al- gallalausar vísur, því að hann hef- ir brageyra gott og er málvand- ur. Safnanda og útgefanda ber að þakka framkvæmdir. En mest gagn vinna þeir með þvx að safna perlum einum og sýna þær. Hallgrímur Jónsson. AHrfðnhfisið Myndin af Alþýðuhusinu, sem látin er fylgja þessu blaði til sýn- is almenningi, sýnir framhlið hússins, er snýr að Hverfisgötu. Myndin er gerð eftir uppdrætti Sigurðar húsgerðarmeistara Guð- mundssonar frá Hofdölum og smækkuð af Ásgeiri Bjarnþórs- syni listmálara. Pétur G. Guð- mundsson bókhaldari hefir gert upplagið af myndinni með fjöl- faldara, sem hægt er að endur- taka með dráttmyndir og alls konar mál á óvenjulega skýran og hreinlegan hátt. Á myndinni geta borgarbúar séð, hver hluti það er af húsinu, sem \ þegar er byggður. Mankynsfræðar! væntattlegur í.dag Þess hefir áður verið getið, að guðspekingar og fleiri vænta mannkynsfræðara. Staðið hefir t útlendum ritum, að hans væri von í bag. Sagt er, að hann taki sér bústað í líkama J. Krishnamurtis. Til Lauga. Góðu skáldi goðin mældu gullinn arf í lífsins starfi: Æskuþrá og faðmlög freyju frelsishvöt á þröngri götu, hagleikssriilli, háa köllun hjartagæði, þolinmæði. — Bróðurþel og andans ylur afla vina skjala hlyni. Amicu9.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.