Dögun - 29.06.1946, Síða 2
2
D Ö G U N
Hverjir eru núábyrgðar lausir
Framboðsfundur var haldinn
í Bíóhöllinni fyrra laugardags-
kvöld. Frambjóðendur flokk-
anna leiddu þar saman hesta
sína, og fór sem vænta mátti, að
ekki bar í milli hjá frambjóð-
anda Sjálfstæðisflokksins, Pétri
Ottesen og Þóri Steinþórssyni,
frambjóðanda Framsóknarflokks-
ins. Þeir eru báðir fulltrúar
stjórnarandstöðunnar, og fá því
væntanlega ekki atkvæði þeirra
manna, sem vilja framhald ný-
sköpunarstefnu stjórnarinnar.
•
Hitt mun mönnum hafa leik-
ið forvitni á að vita, hvorum
armi Alþýðuflokksins Baldvin
Þ. Kristjánsson fylgdi. Fyrir-
spurn Stefáns Ögmundssonar,
frambjóðanda Sósíalistaflokks-
ins, svaraði B. Þ. K. að ekki
kcemi málinu við, hver afstaða
hans hefði verið, er stjórnar-
samstarfið var samþykkt með 11
gegn 10 atkv. í miðstjórn Al-
þýðuflokksins, en á hinu vœri
honum engin launung, „að sízt
vildi hann, að kommúnistar
væru í ríkisstjórn“.
•
Það verður eigi um deilt, hvað
þetta svar þýðir: Frambjóðandi
Alþýðuflokksins hér er sammála
Pétri og Þóri um andstöðu við
núverandi stjórnarsamstarf.
Hann er háður sömu blindn-
%
inni, sem lýsti sér hjá P. O., er
hann skýrði háttv. kjósendum
frá andstöðu sinni gegn stjórn-
inni: Hann var á móti henni,
„af því að kommúnistar voru
með“. Ef þetta er ekki ofstæki
og pólitísk starblindni, þá eru
þau hugtök óþörf í máli okkar.
Hvað mundu þessir sömu menn
segja, ef sósíalistar bæru
fram slík „rök“ gegn stuðningi
sínum við ríkisstjórn eða ein-
stök málefni?
•
Sannleikurinn er sá, að þessir
ofstækismenn, sem ár og síð
básúna „lýðræðisást“ sína, gera
sér ekki enn ljóst, að lýðrœði þýð-
ir frelsi allra til að mynda sér
skoðanir og halda þeim fram,
þýðir rétt fólksins til að láta mál-
efnin ein ráða afstöðu sinni.
Því verður naumast trúað að
óreyndu, að þetta einræðissjón-
armið eigi svo sterk ítök í þjóð-
inni sem áður nefndir frambjóð-
endur halda. Ef þeim hefði tek-
izt að benda á eitt einasta dæmi
þess, að sósíalistar hefðu snúizt
gegn framfara- eða frelsismálum
þjóðarinnar, þá væri hlustandi á
hróp þeirra um „Moskvamenn",
„rússneskan landráðalýð“ og
önnur álíka svívirðingarheiti um
fimmta hvern samlanda sinn.
•
Framboðsfundurinn var illa
sóttur — tæplega 200 manns —,
enda er ekki furðulegt, þótt
margir Sjálfstæðismenn hafi
heldur kosið að vera heima en
hlusta á fyrverandi júngmann
sinn verja mótspyrnu sína gegn
viðreisn íslenzkra atvinnuvega.
Þeir sitja þá væntanlega líka
heima á kjördegi, ef þeir treysta
sér ekki til þess að velta af sér
oki stjórnarandstöðunnar með
því að kjósa eina stuðningsmann
nýsköpunarinnar, Stefán Ög-
mundsson. Það er öruggt, að
hvert atkvæði, sem honum er
greitt, stuðlar að framhaldi við-
reisnarinnar, því að allir fram-
bjóðendur Sósíalistaflokksins
styðja þann málstað.
Fundarmaður.
Cr h 3 m
Ll UqU 080 m
lýðræðisbrot
Andstæðingar sósíalista saka
I þá um lýðræðisbrot, er þeir óska
þess, að núverandi stjórnar-
flokkar komi sér strax saman um
framhald þessarar samvinnu og
tilkynni kjósendum þann vilja
sinn.
Er það lýðrœðisbrot, að segja
kjósendum, hvað flokkarnir
cetlast fyrir að kosningum lokn-
um?
Vceri það lýðrœðisbrot, ef
flokkarnir birtu kjósendum
stefnuskrár sínar, svo að þeir
gætu valið á milli?
Vœri það lýðrceðisbrot, að
kjósendur vissu fyrir kosningar,
hver afstaða frambjóðendanna
væri til herstöðvamálsins?
Vceri það lýðrœðisbrot, að
kjósendur fengju að vita hug
frambjóðendanna til áfengis-
málsins?
Vœri það lýðrœðisbrot, að
kjósendur fengju með sama
hætti að vita fyrirætlanir flokk-
anna um stjórnarmyndun?
Nei. En það er lýðrœðisbrot,
að leyna þvi, ef þessir flokkar
œtla að rjufa samstarfið eftir
kosningar.
Eitt höfuð slagorð gegn sósíal-
istum hefur jafnan verið
„ábyrgðarleysi“. Andstöðuflokk-
arnir hafa hamrað á þessu, eink-
um fyrir kosningar. Margir
minnast síðustu Alþingiskosn-
inga. Þá hrópuðu blöðin til
kjósendanna að þurrka út „á-
byrgðarlausa flokkinn, sem að-
eins vildi niðurrif, en enga
stjórn eða ábyrgð taka á sínar
herðar“.
Kjósendur ginu ekki við þess-
ari upphrópun: Þeir stór-juku
áhrif sósíalista á þingi þjóðar-
innar.
Sjálfstæðis"
mcnn!
Flest ykkar vilja styðja ný-
sköpunarstefnuna. En finnst
ykkur þið gera það með því að
kjósa Pétur Ottesen, sem ekki
vill ljá lið sitt til samstarfsins,
þótt það færi fram undir for-
ystu flokksformannsins? Eða
hefur afstaða P. O breytzt til
þessa máls? Þið vitið, að því er
sízt þannig farið. Hvert atkvæði,
sem hann fær, er því greitt gegn
núverandi stjórnarstefnu, gegn
stefnu formanns Sjálfstæðis-
flokksins.
En sérhvert atkvæði, sem Stef-
án Ögmundsson fær, er jáyrði
við nýsköpunarstefnu ríkisstjórn-
arinnar.
Þið, sem ekki eruð klafabund-
in af mætti vanans, munið því
að kjósa Stefán Ögmundsson í
þessum kosningum.
LEIERÉfTING
í greininni um húsnæðisleysið
var sú villa, að sagt var að Sósíal-
istar hefðu lagt til að 20 millj.
króna yrði varið til bygginga
samvinnubústaða. Tillögur Sósí-
alista voru í tvennu lagi:
a) að varið skyldi 20 millj. til
bygginga verkamannabústaða.
b) að stofnuð yrði sérstök veð- i
deild með 60 millj. króna fram-
lagi úr ríkissjóði. Þaðan yrðu
veitt hagkvæm lán til bygginga
samvinnubústaða og einkaíbúða.
Þessar tillögur felldu hinir
flokkarnir allir, og kunna hús-
næðisleysingjarnir þeim litlar
þakkir fyrir. Þeir munu líka
svara fyrir sig á sunnudaginn.
Enn er æpt að sósíalistum. En
nú er „ábyrgðarleysið“ hjáróma
útburðarvæl. Sósíalistar reyndust
ábyrgustu menn þjóðþingsins,
því að þeir einir gengu óskiptir
til fullrar ábyrgðar á samstjórn í
landinu á örlagastundu þjóðar-
innar.
„Ábyrgð" hinna flokkanna
lýsti sér í algerri neitun á stjórn-
armyndun, eða hálfvelgju og tví-
skinnungi.
Þannig stóðst þetta vígorð
I dóm reynslunnar. Skyldi svo fara
I um þau fleiri?
Efnalaug Akraness
Sími 96.
Annast nú litun á fatnaði
allir litir fyrirliggjandi.
Hefi fyrirliggjandi
allan algengan
vinnu- og olíufatnað.
*
Axel Sveirbiörnsson.
Krcppappír
allir
regnbogans litir.
BÓKAVERZLUNIN
Anfrés Nie'son
Sími 85 — Akranesi.
Rifrækjavinnustofan
VIRKJUN
Annast alls konar nýlagn-
ir, breytingar og viðgerð-
ir á raflögnum í húsum
og skipum.
X STEFÁN 0GMUNDSSON
i
Lýðrceðissinni.