Dögun - 29.06.1946, Qupperneq 3

Dögun - 29.06.1946, Qupperneq 3
DÖGUN 3 Bœjarblað Sósialistafélags Akraness. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Helgi Þörláksson, Baugstíg 11 Sími 72 B. BORCARPRENT Nýsköpun tii siávar og sveita. Núverandi ríkisstjórn gerði djarfhuga áætlun um eflingu at- vinnuveganna. Mikið hefur þok azt í rétta átt þau tæp tvö ár, sem stjórnin hefur farið með völd. Alhliða aukning framleiðslunn- ar er tryggð fyrir aðgerðir henn ar jafnhliða víðsýnni og djarf huga tryggingu menningarinn- ar í landinu. • Hins vegar er enn ótal margt óleyst: Húsnæðismálið, heild- salaokrið, viðreisn landbúnaðar- ins, svo að fátt eitt sé nefnt af næstu verkefnum íslenzku þjóð- arinnar. • Vilt þú, kjósándi góður, að nú sé staðnæmzt og jafnvel hörfað til baka? Eða vilt þú framhald þessarar viðreisnar þar sem hún er þegar hafin, og svipaða ný- sköpun hinna fjölmörgu óleystu mála í sveit og við sjó? Svar þitt er reyndar vafalaust: Þú óskar þér og þjóð þinni batn- andi tíma, aukinnar framleiðslu, vaxandi kaupgetu, tryggra mark- aða. • En athugaðu rólega, hvaða flokkur hefur þegar lýst því yfir, að hann bjóði alla sína krafta til framhalds þessarar stefnu. Þú kemst að raun um, að það er aðeins Sósíalistaflokkurinn, sem þar gengur heill til verks. Þess vegna kýst þú hann á sunnudaginn, leggur þinn stein í sterka viðreisnarbyggingu þjóð- arinnar. X Stefán Ögmundsson. Frh. af bls. 1. Hrakspár svartsýnismannanna hafa ekki rætzt. Bölsýnispostul- arnir, sem eigi vildu taka þátt í þessari stærstu samstarfstilraun þjóðarinnar, verða að sætta sig við örlög sín. Þeir kusu sér vist utan garðs, þjóðin vænti þess, að þeir yrðu það eftirleiðis. En — hvað skeður? Stjórnar- andstæðingar Sjálfstæðisflokks- ins eru enn í boði í nafni flokks- ins, sem þeir studdu ekki, og nýjum er bætt við. Alþýðuflokk- urinn, sem gekk veikastur til samstarfsins, en átti þó ágæta fylgjendur þess á þingi, boðar, með framboðum, stór aukin völd andstöðunnar, ef flokkurinn má ráða. Þessu til áréttingar er hvorug- ur þessara flokka tilbúinn að lýsa yfir ósk um framhald sam- starfsins að kosningum loknum, og blöð þeirra kalla tilboð sósí- alista um þetta „lýðræðisbrot" og fleiri nöfnum. Er þetta af því, að fólkið vilji rjúfa þessa samvinnu? Nei, og aftur nei. Mikill meirihluti þjóð- arinnar fagnar samvinnunni, og þó er sá hópur enn stærri, sem kýs framhald hennar. Er það líka trúlegt, að fólkið vilji held- ur verkföll, verkbönn, vaxandi i tortryggni, úlfúð og hatur? Það er víst, að mjög skilur í milli um stjórnmálaskoðanir þessara flokka, og enginn þeirra fleytir öllum sínum málum í höfn með aðstoð hinna. En sam- eiginleg áhugamál og sjónarmið eru þó enn svo mörg, að fram- hald slíkrar samvinnu atvinnu- rekenda og launþega er þjóðar- nauðsyn enn um sinn. Það væri vissulega lýðræðis- legast, að þjóðinni væri kunn- gerður fyrir kosningar vilji allra flokka til slíks samstarfs. Framsóknarflokkurinn kaus sér það ömurlega hlutskipti í upphafi að standa utan gátta. Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn hafa nú valið sér þann ólýðræðiSlega kost að dylja hug sinn, standa í gættinni, svo að enginn viti, hvort þeir ætla út eða inn. Val kjósendanna er þó ekki erfitt: Þeir, sem heldur vilja fyrra sundrungar- og dáðleysis- ástand ættu að kjósa Framsókn- arflokkinn eða fylgjendur hans í hinum tveimur. En þeir, sem vilja friðsamlegt samstarf, unz tryggð er farsæl afkoma landsmanna, þeir kjósa frambjóðendur Sósíalistaflokks- ins, eina flokksins, sem gekk heill til þessa samstarfs, vann óskiptum kröftum að þvi og vill halda þvi áfram. E R VALIÐ ERFITT? Ef þú ert MEÐ nýsköpuninni, þá getur þú ekki kosið Þóri Steinþórsson frambjóðanda þess flokks, sem ekki vildi standa að myndun núverandi stjórnar. Ef þú ert MEÐ nýsköpuninni, þá getur þú ekki kosið Pétur Ottesen, sem neitaði samstarfi við sósíalista, fimmta hluta þjóð- arinnar og meiri hluta verka- lýðsstéttarinnar. Ef þú ert MEÐ nýsköpuninni, þá getur þú ekki kosið Baldvin Þ. Kristjánsson, sem lýsti því yfir á framboðsfundi, að liann vildi heldur stjórnarsamstarf við and- stæðinga nýsköpunarinnar, Framsóknarflokkinn, en „kom- múnista". Ef þú ert MEÐ nýsköpuninni, þá kýst þú Stefán Ögmundsson, eina frambjóðandann hér, sem vill framhald hennar og eflingu. X Sfefán Oómundsson Nýja sildarverksmiðjan á Siglufirði. Hermann Jónasson, Björn Olafsson o$ Siefán Jóh. Slef- ánsson hafa gert samhomulag um myndun nýrrar hung- urstfórnar efiír kosníngar, ef flokkar þeírra halda vellí Hvert atkvæði á þjóðstjórnarflokkana er greitt gegn ný- sköpun atvinnuveganna og sjálfstæði islands!

x

Dögun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dögun
https://timarit.is/publication/1946

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.