Dögun - 17.07.1946, Blaðsíða 2

Dögun - 17.07.1946, Blaðsíða 2
2 DÖGUN DÖGUN Bœjarblað Sósialistafélags Akraness. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Helgi Þorláksson, Baugstig 11 Sími 72 B. Fjárhagsáætlunin Fjárhagsáætlunin, einstak'r l;ðir og afgreiðsla hennar í bæjarstjóm, verður rædd nánar í næsta eða næstu blöð- um. Að þessu sinni skal þess aðeins getið, að við afgreiðslu hennar hækkuðu niðurstöðu- tölumar um 49.500 kr. frá t'llögum bæjarráðs. Voru þó felldar ýmsar nytjatillögur, og, verður síðar gerð grein fyrir þeim. E:ns og fyrr var getið, og öllum raunar vitanlegt, eru útsvör bæjarbúa svo að segja eina tekjulind bæjarins. Það má því segja, að sterk rök mæli gegn hverri e'nustu hækkun útgjaldanna, hversu nauðsynleg, sem hún kann að vera. En það verður fyrr eða síð- ar kveðinn þungur almenn- ingsdómur yfir þeim bæjar- eða sveitastjórnum, sem ekki hafa notfært sér l'ðin góðæri til að trvggia aðrar og far- sælli tekjule;ðir. Vitað er, að ýmsir einstak- lingar hafa orð:ð auðkýfing- ar af því einu, að annast fisk- flutnmga til Englands á stríðsárunum. Síðan hafa þeir látið sk'p sín flytja kol, salt, byggingarvörur o. fl. til baka og því hagnast tvöfalt af flutningunum. Sú blinda einstaklings- hyggja, sem ekki vill að bæj- arfélögin hagnýti sér slíkar og þvílíkar tekjuleið'r, er þjóðhættuleg. Á ábyrgð hennar dragast brýnustu nytjaframkvæmdir bæjarfé- laganna margfaldan þann árafjölda, sem þyrfti. Á á- byrgð hennar verða álögur að þyngjast á bæjarbúum, hverju sinni, sem nauðsyn knýr til aukinna útgjalda. Þetta eru raunar ósköp einfaldar staðreyndir, en til þess úr verði bætt, verður fólkið sjálft, gjaldendum'r að gerá annað tveúsia: að knýja ráðamennina, (fulltrúa sína), til stefnubreytingar, eða nota ý Sigurður E. Hallbjarnarson Sigurður Eðvarð Hall- bjarnarson, útgerðarmaður, lézt af hjartaslagi 3. júlí sl. Hann var fæddur 28. júlí 1887 að Hóli í Bíldudal. Hann var elztur 12 barna, hjónanna Sigrúnar Sigurðardóttur frá Gufudal og Hallbjarnar E. Oddssonar, prests að Skarðs- þingum og síðar Gufudal. Leið Sigurðar lá snemma á sjó. 14 ára réri hann fyrir fullum hlut á skip' hjá föð- ur sínum. Næstu ár var hann á sjó á sumrum, en við skipa- smíðar að vetri, unz efniv;ð þraut. Gerðist hann þá há- seti. En 22 ára varð- hann formaður fyrsta sinni. Var það á Svan frá Suðureyri. Fyrsta bátinn e'gnaðist Sig- prður 1911. Var það mb. Ald- an, sem hann keypti í félagi við Guðmund Ásgrímsson, tengdaföður sinn. Bátar voru smáir vestra á þeim árum. Sigurður keypti einn slíkan, Samson að nafni, og er hann strandaði, lét hann smíða úr honum mb. Skími, -23 smál. og sótti til Sandgerðis á honum. Vorið 1927 flutti Sigurður til Akra- ness, en þá hafði hann nýlega keypt Hermóð í stað Skímis. Véri hann í fyrstu úr Sand- gerði sem og aðrir Akurnes- ingar, en varð með þe'm cyrstu til róðra héðan á vetr- arvertíð. Sigurður lagði hér gjörva hönd á margt, enda áræðinn 'g ósérhlífinn atgervismaður. Hann reisti og kevpti fiskhús, 'iyggði verzlunarhús, íbúðar- i.ús og hraðfrystihús. Sjó- róðrum hætti hann 1934, enda burfti hann um margt að sjá með vaxandi athöfnum. Tferzlun starfrækti hann síð- ’stu átta árin og mun nú hafa búið sig undir ýmis störf dð væntanlegan ferjustað í Hvalfirði. Ár:ð 1913 kvænúst Sigurð- ’ir Ólöfu Guðmundsdóttur frá Gelti. Samhent komu þau upp tíu börnum sínum, en tvö dóu uug. Elzta son sinn, Magnús Eðvarð, misstu þau fyrir fáum mánuðum. fyrsta tækifæri t;l að svipta þá ráðsmennskunni. Fyrri leið:n er e. t. v. möguleg, en sú síðar:' er ör- uggari, þegar þar að kemur, Það er raunar nóg þjóð- nytjastarf, að koma svo stór- um barnahópi til manns. En þrek og hyggja Sigurðar náði lengra, þótt ekki verði hér frekar rakið. Sigurður Hallbjarnarson var frá bernsku með afbrigð- um þrifinn og hirðusamur, dugmaðúr mikill og ábyggi- legur. Engum leyndist fram- sækni hans, og kyrrstaða var eðli hans f jarstæð. Árekstra- laust mun hann engan veg hafa s'glt lífsfleyi sínu, en ég hygg ólíklegt, að h:spurslaus orð hans eða athafnir hafi afiað honum óvina. Skapferli hans var ekki þann veg. — Efallbjörn, faðir Sigurð- ar, er hér búsettur og gengur ern til iðju sinnar, þótt dagur sýnist að árum til vera að kvöldi kominn og dauðinn sigði frændgarðinn. — Öldurót og úfinn sjór. Fán- ar blakta í hálfa stöng. Sig- urður E. Hallbjarnarson er borinn til grafar. Frá höfn- inni berast hamarshögg frá steinnökkva þeim, sem á- ræðnir víkingar komandi hna munu leggja skipum sínum að. Að landi leggja lág- /röir sæfarar, fyrrum her- ileytur. Þeirra hefur verið beðið af óþreyju og kannske helzt af þeim, sem hylst moldu á þessari stundu. S:gurður Hallbjarnarson var farmáður, í fullri merk- ingu þess orðs. Þótt hans sé vissulega saknað af mörgum, þá staðnæmumst við ekki við dauða hans. Minning hans er bezt heiðruð með stritandi vélum og starfsmönnum glöð- um. Þá má hitt liggja ógetið, sem miður hefur verið. Kosningaárslit í Borgaríjarðarsýslu Alþingiskosningar fóru fram 30. f. m. Hér í Borgarfjarðar- sýslu vpru 2022 á kjörskrá, en 1655 munu hafa kosið, eða um 31,85%. Atkvæði voru talin 1. júlí og féllu þannig: Baldvin Þ. Kristjánsson (Alþfl.) 236 + 58 á landlista = 294 eða um 17,8%. Þórir Steinþórsson (Framsóknar- flokkur) 345 + 22 á landlista = 367 eða um 22,2%. Stefán Ög- mundsson (Sósíalistafl.), 170 + 17 á landlista = 187 eða um 11,3%. Pétur Ottesen (Sjálfstæð- isflokkur). 725 atkvæði + 63 á landlista = 788, eða um 47,7%. Auðir voru 16 seðlar og 3 ógildir. Þetta mun vera í 10. sinn, sem Pétur Ottesen er kosinn þing- maður fyrir Borgarfjarðarsýslu, og á hann 30 ára þingmannsaf- mæli 21. október í haust. Við" haustkosningarnar 1942 féllu atkvæði þannig í Borgar- fjarðarsýslu: Sigurður Einarsson (Alþfl.) 248 + 47 á landlista, = 295 atkv., eða um 20,6%. Sverrir Gíslason (Frams.), 333 + 12 á landlista, = 345, eða um 24,1%. Steinþór Guðmundsson (Sósíal- istafl.), 75 + 23 á landlista = 98 atkv., eða um 6,9%. Pétur Ottesen (Sjálfstæðisfl.), 625 + 21 á landlista, = 673 atkv. eða um 47,1%. 15 seðlar voru auðir og 5 ógildir. Alls kusu því 1429. Ef gerður er samanburður, sést að þessar breytingar hafa orðið á fylgi flokkanna: Alþýðuflokkur tapar 1 atkv. eða 0,3%. Fram- sóknarfl. vinnur 20 atkv., eykur um 5,8%. Sósíalistaflokkurinn vinnur 89 atkvæði, eykur við sig 90 8%. Sjálfstæðisfl. vinnur 115 atkv., eykur xun 17,1%. Þessar tölur sýna stórsókn sósíalista hér kjördæminu. Ber vissulega að fagna þeim árangri, sem þegar hefur náðst, þótt hlutfallstalan (11,3%) sé vissu- lega allt of lág. Sumir munu og hafa vænzt enn meiri ^aukningar í þessum kosningum og byggðu þær vonir á úrslitum bæjar- stjórnarkosninganna hér í vetur. Það er þó auðvitað rangur mæli- kvarði. Reynslan sýnir víðast, að alls ekki má bera saman at- kvæðatölur bæjarstjórna- og al- þingiskosninga. Stafar það af ýmsu, s/o sem mismun persónu- kynna, likum fyrir kjöri fram- bjóðenda o. s. frv. Sósíalistar geta þá ekki síður verið ánægðir með það, að frambjóðandi þeirra var eini frambjóðandinn, sem fékk færri atkvæði á landlista nú en síðast, þrátt fyrir hlutfallslega lang- mesta atkvæðaaukningu. Sá sarn- anburður verður þannig: Landlisti Alþýðuflokksins fékk 1942 47 atkv., nú 58. Landlisti Framsóknarflokksins fékk 1942 12 atkv., nú 22. Landlisti Sósíal- istaflokksins fékk 1942 23 atkv. nú 17. Landlisti Sjálfstæðisfl. fékk 1942 21 atkv., nú 63. Af þessum samanburði má ennfremur sjá, að um 20% kjós- enda Alþýðuflokksins eru óá- nægðir með frambjóðandann, en innan við 10% meðal hinna flokkanna. Þessi prósenttala Al- þýðuflokksins, svo og þreföldun á landlistaatkv. Sjálfstæðisflokks- ins er skýr vottur um óánægju kjósenda þessara flokka með af- stöðu frambjóðenda til stjórnar- samstarfsins.

x

Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dögun
https://timarit.is/publication/1946

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.