Skemmtisögur - 15.04.1953, Blaðsíða 22
MARGT BER Á GÓMA.
— Auðvitað elska ég þig ennþá. Hvað
urn það?
— Þessi kirkja er byggð nákvœmlega eins
og hin fyrri, sem hrundi til grunna árið
1907.
Enskuv dómari: Vinnutími minn eyðist að
mestu leyti í að dæma um bílaárekstra, þar sem
báðir aðilar voru réttu megin á götunni, báðir
höfðu gefið greinileg hljóðmerki og hvorugur
verið á hreyfingu.
NK
Sean O’Casey: Hamingjan verður ekki keypt
fyrir peninga — en þeir hafa óneitanlega góð á-
hrif á taugarnar.
'v'
Bernard Shaw: Ef þér endilega þurfið að segja
börnum yðar, hvernig þér voruð á þeirra reki,
þá gætið þess að minnsta kosti, að haga lýsing-
unni þannig að hún sé þeim til varnaðar — en
ekki til eftirbreytni.
Marina Berti, itölsk leikkona, sagði i sambandi
við hinar mörgu pin-up-girl-myndir í Holly-
wood: I mínu föðurlandi erum við ekki taldar
hlutgengar sem konur, nema við getum vakið
athygli karlmannanna alklæddar.
V
Circle: Ungar stúlkur vilja heldur vera fagrar
ásýndum en gáfaðar. Ungir menn hafa nefnilega
betri sjón en dómgreind.
N/’
Victor Borge, segir meðal annars um hina
skemmtilegu bernsku sína: Einu sinni, þegar fað-
ir minn kom inn, sá hann hvar ég sat á gólfinu
framan við blossandi arineld. Hann varð fjúk-
andi reiður. Það var sem sé enginn arinn í stof-
unni.
V
Mark Twain: Flestir halda, að ekkert fari eins
hraðvaxandi sem ástin. En sannleikurinn er sá,
að slíkt er fjarri sanni. Hvorki karl eða kona
20
SKEMMTISÓGUR