Skemmtisögur - 15.04.1953, Síða 24
Það gerðist á nýjársmorgni
Sakamálasaga
eftir VALENTINE GREGORY
gF ráðskonan, frá Yewell, hefði ekki verið
svo heyrnarsljó, og ef stofustúlkan
Nancy Heath hefði ekki verið í borginni
þegar þetta gerðist, hefði dauði Storrs
prófessors á nýársdagsmorgninum ekki ver-
ið jafn dularfullur.
Þó dauða hans bæri brátt að, vannst hon-
um þó tími til að kalla á hjálp. Rafmagns-
taflan í eldhúsinu sýndi það, og það sást
einnig á því, hvernig liann lá á gólfinu í
herbergi sínu, er hann fannst.
En þvi miður, á þeirri stundu er hann
andaðist, var frú Yewell uppi á lofti og
heyrði ekki í bjöllunni. Annars hefði Iiún
ef til vill verið hjá honum síðustu andar-
tökin, og þó hún hefði ekki getað bjargað
lífi hans, hefði hún ef til vill heyrt hann
segja eitthvað eða séð hann gefa einhverja
bendingu, sem hefði getað varpað ljósi á
þennan sorglega atburð.
En í þess stað dó prófessorinn óhugnan-
lega snögglega og aleinn, og hlaut, eftir því
sem Colvin læknir áleit, að hafa verið dá-
inn í að minnsta kosti klukkustund, þegar
frú Yewell fann lík hans.
Hún hélt auðvitað strax, að hann hefði
fengið hjartaslag, og fyrsta hugsun hennar
var að senda eftir lækninum, en prófessorn-
um hafði verið illa við síma, og slíkt tæki
var ekki til í húsinu. Hún varð því að
bíða þar til stofustúlkan, Nancy, kom heim.
Það var símaklefi spölkorn niður með veg-
inum til Doring Hatch, og henni fannst
ekki hún geta yfirgefið húsið, þegar svona
var ástatt.
Meðan hún beið í öngum sínum eftir
Nancy, gat hún ekki látið vera að hugleiða
afleiðingarnar, sem dauði prófessorsins
hlaut að hafa í för með sér, ekki fyrir ætt-
ingja hans, heldur einnig fyrir hana sjálfa.
Hún hafði verið ráðskona í Danes Cott-
age síðan prófessorinn, eftir heimkomu sína
frá Austurlöndum fyrir fimm árum hafði
keypt þetta litla hús í titjaðri Doring
Hatch. Það hafði verið þægileg staða, og
þar eð prófessorinn var ekki nema sextíu
og fimm ára, hafði hún vonað að verða
þarna að minnsta kosti tíu ár enn.
Loksins sá hún Nancy koma og veifaði í
ákafa til hennar. Unga stúlkan hraðaði sér.
„Prófessorinn hefur fengið slag," sagði
frú Yewell. „Flýttu þér niður í símaklefann
og hringdu til Colvin læknis, og segðu hon-
um að koma strax.“
Dauðskelfd sneri Nancy við og hljóp nið-
ur veginn. Hún kom aftur eftir örfáar mín-
útur.
„Læknirinn sagðist Jtoma samstundis,"
sagði hún. „Líður prófessornum mjög illa?"
„Hann er dáinn," sagði frú Yewell.
„Dáinn —
Frú Yewell leit hátíðlega upp í loftið og
kom um leið auga á rafmagnstöfluna. Hún
starði skelfd:
„Hann hefur hringt á mig, og ég hef
ekki heyrt það." Hún brast í grát og lét
22
SKEMMTISÖGUR