Skemmtisögur - 15.04.1953, Side 29

Skemmtisögur - 15.04.1953, Side 29
sér fyrst til mín, og svo get ég farið með honum í spítalann." „Komið með hann hingað og borðið kvöldverð með okkur,“ bauð Wjilliam Storr. Umsjónarmaðurinn kinkaði kolli og flýtti sér burt. „Eg vona innilega, að þetta mál verði upplýst sem fyrst,“ sagði William Storr við systur sína. „Það er andstyggilegt að hugsa sér, að morðingi leiki lausum hala meðal okkar.“ Winifred leit óttaslegin á hann. „Willi- am, þú átt þó ekki við, að Frederick eða Albert ...“ „Ég á ekki við neitt,“ sagði William þungbúinn. „Mér fannst bara þeir hegða sér kynlega.“ „Það getur verið einhver ókunnur — það hlýtur að vera einhver ókunnur, sagði Winifred. „Það getur verið. En það er undarlegt, að engu skuli liafa verið stolið. Ef um morð er að ræða, getur grunur fallið á okk- ur öll. Ég er feginn, að þér skyldi hug- kvæmast Harkness prófessor. Geti nokkur ráðið fram úr þessu máli, er það hann.“ Umsjónarmaðurinn braut innsiglið að skrifstofudyrunum, kveikti ljósið og vék til hliðar. Harkness gekk nokkur skref inn í stof- una, stanzaði og leit í kringum sig. „Sýnið mér nákvæmlega hvar hann lá,“ sagði hann. Umsjónarmaðurinn sýndi honum það og skýrði fyrir honum stellingar líksins. Stein- þegjandi tók Harkness að rannsaka her- bergið í krók og kring. Hann hafði strax litið á arinteppið þegar hann kom inn, en beið með að rannsaka arininn þar til síðast. Á arinhillunni stóð marmaraklukka og ei- lííðaralmanak í mahogníhylki. Það sýndi daginn 1. janúar 1950. Hann leit á hvern einstakan hlut og síð- SKEMMTISÖGUR an á teppið, slétti úr því stillti sér svo á það, rétti höndina í áttina að klukkunni, sneri sér svo til hliðar. fálmaði með hönd- unum og riðaði, eins og hann væri að detta. „Drottinn minn —“ sagði umsjónarmað- urinn. „Þér eruð þó ekki veikur?“ Án þess að svara rétti prófessorinn úr sér og leit á teppið. Það lá næstum eins og áður, undið til og hrukkað. „Ég vildi gjarnan tala við ráðskonuna,“ sagð hann og settist við skrifborðið. „Viljið þér biðja hana að koma.“ Umsjónarmaðurinn flýtti sér út og leit um leið til Willam Storr, sem hafði fylgzt af áhuga með hinu undarlega framferði prófessorsins. Hann kom eftir andartak á- samt frá Yewell. Nú sagði Harkness. „Þér eruð ráðskonan? hafa margir heimsótt prófessorinn ný- lega, eða hefur hann fengið mörg bréf?“ „Ég minnist ekki að nokkur hafi heirn- sótt prófessorinn síðustu vikurnar, en nokk- ur bréf hefur hann fengið — enda eru nú áramót. Og í gær l'ékk hann líksL. pakka, veit ég.“ „Hvernig leit hann út?“ „Það var pappaaskja.“ „Sáuð þér prófessorinn opna hana?“ „Nei. Ég lagði hana á borðið hans.“ „Hvenær sáuð þér öskjuna svo næst?“ „Núna í morgun um ellefuleytið, þegar ég kom með mjólk handa prófessornum. „Og hvar ex hún nú?“ „Ég lagði liana út í brennikassann." „Viljið þér sækja hana. Mig langar til að skoða hana. Frú Yewell flýtti sér út og kom aftur með öskjuna. Harkness tók hana og skoðaði hana með stækkunargleri. Á lokinu var miði með vélrituðu heimilisfangi. Póststimpill- inn var London E. C. og dagsetningin var 28. desember. „Þér ættuð að taka hana i yðar vörslu, 27

x

Skemmtisögur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.