Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 6

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 6
BJORN BJARNASON: Af alþjóðavettvangi Verkalýðsráðsteínan í Berlín 20—22. júní. Ráðstefnan var haldin í þinghúsi Austur-þý'zka lýðveldisins og sátu hana 513 fulltrúar frá 22 Evrópu- löndum, þar á meðal 2 héðan frá Is- landi, þeir Helgi Hóseasson prentari og Björn Bjarnason. Af þessum 513 fulltrúum voru 80% frá löndum Vest- ur-Evrópu og meira en helmingur þeirra frá félögum sem eru meðlimir í „Alþjóðasambandi frjálsra verka- lýðsfélaga“. Viðfangsefni ráðstefnunnar var að ræða „Þátt verkalýðssamtakanna í íriðsamlegu samstarfi allra þjóða Evrópu að öryggi, friði og bættri af- komu vinnandi fólks“. Án tillits til mismunandi pólitískra skoðana eða félagstengsla voru allir fulltrúarnir sammála um þær álykt- anir sem ráðstefnan samþykkti, en þær voru, Ávarp til verkalýðs Ev- rópu og Orðsending til verkalýðs allra landa. í Ávarpinu til verkalýðs Ev- rópu segir meðal annars: „Það er unnt að koma í veg fyrir hverskonar árás er vera skal í Evrópu. Leiðin til þess er að mynda bandalag allra Evrópu- ríkja án tillits til þjóðfélagshátta, þar sem ekkert ríki. njóti neinna forrétt- ina og fullt tillit sé tekið til þjóðlegs sjálfstæðis þeirra allra.“ Ráðstefnan lagði mjög eindregið gegn stofnun hins svokallaða Varn- arbandalags Evrópu og Evrópuhern- um og taldi að hervæðing Þýzkalands myndi tvímælalaust leiða til nýrrar styrjaldar. Skoraði hún á allan verka- lýð að treysta eininguna, bæði innávið og alþjóðlega, að beita öllu afli sam- takanna að sameiginlegu öryggi og varanlegum friði. í Orðsendingu sinni til verkalýðs allra landa, skorar ráðstefnan á hann að’ herða baráttuna gegn tilraunum og notkun vetnissprengjunnar og ann- ara gjöreyðingarvopna og hvetur verkalýðssamtökin til að beita sínu mikla afli í þágu friðarins og varð- veizlu menningarinnar- Ellefta þing Verkalýffssambands Sovétríkjanna ' var sett hinn 7. júlí s.l. í Kreml. Þrettán hundruð fulltrúar sátu þingið, en sambandið telur nú yfir 40 milljón- ir meðlima. Forseti Æðstaráðs Sov- étríkjanna, K. E. Voroshilov, forsæt- isráðherrann G. M. Malenkov og fjöldi annara leiðtoga Sovétþjóðanna, voru viðstaddir þingsetninguna. Gestir þingsins voru einnig fulltrúar frá 35 löndum úr öllum heimsálfum, og auk þess sendinefnd frá Alþjóðasambandi 92 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.