Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 7
verkalýðsfélaganna undir forystu að-
alritara þess, Louis Saillant.
Skýrslu um starf sambandsins frá
síðasta þing'i þess flutti forsetinn, N.
M. Shvernik. Tímabilið frá síðasta
þingi var tímabil hraðstígari upp-
byggingar og framfara en nokkurn-
tíma áður ísögu verkalýðssamtakanna,
svo að allar hinar djörfu áætlanir
sovétverkalýðsins fóru langt fram úr
marki.
Jafnhliða því að efla hag verkalýðs-
ins heima fyrir hafði sambandið lagt
drjúgan skerf að eflingu alþjóðlegrar
einingar verkalýðsins, með því að
koma á nánum vináttutengslum við
fjölda verkalýðssambanda víðsvegar
um heim.
Hinir erlendu gestir fluttu sovét-
verkalýðnum hamingjuóskir sam-
banda sinna og færðu honum þakkir
fyrir hinn ómetanlega skerf er hann
hefur lagt fram til varðveizlu friðar-
ins í heiminum.
★
Alþjóðasamband flutning'averka-
manna hefur ákveðið að boða til ráð-
stefnu í janúar n. k. Aðalmál ráð-
stefnunnar verða: hagsmunabarátta
fiutningaverkamanna og framlag til
verndunar friði í heiminum.
Alþjóðaráðstefna efnaiðnaðar- og
olíuverkamanna hefst í Búkarest hinn
21. þ. m., og er gert ráð fyrir að hún
standi 5 daga.
Sjóinennimir á Miirmansktogaranum „Yer-
eva“ luku fimm mánaðaáætlun sinni á fjór-
um mánuðum og skiluðu G þúsuntl vætta
at fiski umfram áætlun.
Myndin: Sjómenn á togaranum „Yreva" við
aðgerð á þilfari.
VINNAN og verkalýöurinn
--------------—— -------------------=
Upphaflega átti þetta að verða
eins konar miðsumarshefti. En
sakir sumarleyfa í prentsmiðjum
á þessum tíma, seinkaði því eins
og rauri ber vitni. Hins vegar
standa vonir til að 4. heftið geti
komið út síðar í þessum mánuði.
Ritstj.
------------------------------------1
93