Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 10

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 10
frumkvæðið og fengið hallan réttan að nokkru, í harðvítugri baráttu við fjandsamlegt ríkisvald atvinnurekenda og handlangara þess í forystu A. S. I. — En þetta var eðlileg afleiðing þess að í stað ein- ingarforystunnar settust í stjórn A. S. I. haustið 1948 fulltrúar stéttarandstæðingsins, menn eins og t. d. Friðleifur Friðriksson, Sigurjón Jónsson og Helgi Hannesson, sem voru yfirlýstir fylgjendur gengislækkunarinnar og fl. stjórnmálalegra árása á launakjör verka- lýðsins. Og sagan getur endurtekið sig, því vitað er, að í herbúðum stétta- andstæðingsins eru stöðugt brugguð ráð um kauprán í ýmsum mynd- um: vísitölusvik, báta- togara- bíla- gjaldeyrir o. m. fl. Gengislækkun- in umbúðalaus er þegar í ljósmáli, þótt dult fari, á meðan ekki er séð hversu fer um Alþýðusambandskosningarnar í haust, •— og hún kemur, ef alþýðan og samtök hennar ekki vakna svo um muni um hag sinn og mátt. Síðast en ekki sízt: Þá mun aftur verða lagður :cjöt- ur vestrænnar einokunar á markaðsfrelsi Islendinga og íslenzkt at- vinnulíf afrækt eiin meir, íslenzku sjálfstæði þrýst fastar en nokkru sinni fyrr í kyrkigreip eriends einokunar- og hernaðarauðvalds. Einsætt er því hvað gera skal: Sá verkalýður, sem þrátt fyrir alla flokkaskiftingu, skóp hina sterku stéttareiningu og markaði þar með sér og þjóð sinni skeið hagsældar á tímabilinu 1942—1948, sá verkalýður, sem þrátt fyrir misheppnaða Alþýðusambandsstjórn og flokkaskiftingu, háði í krafti stéttareiningar sinnar allar fyrr nefndar kjaradeilur gegn hagsmunaárásum ríkisvaldsins s. 1. 6 ár, — hann á nú að hasla einingu sinni þann völl, sem hagsmunir hans kref jast í dag. Slík stéttareining grundvallast vissulega á kaupi og kjörum, töxt- um og samningum, en fyrst og fremst á raungildi þessara hluta. Fyrir því verður stéttareining verkalýðsins, utan sem innan verkalýðssam- takanna, að efla sig •— ekki aðeins til gagnráðstafana eftir að árás hefur verið gerð, heldur einnig til frumkvæðrar baráttu fyrir hagsýn- um þjóðarbúskap, fyrir ákveðnum stefnumálum, sem marka afstöðu verkalýðssamtakanna til stjórnarvalda iandsins hverju sinni. Á þann hátt mundi verkalýðurinn sem stétt geta orðið það sem baggamun- inn réði í framvindu þjóðfélagsmálanna. En til þess að slíkt geti orðið verður hann að sameinast sem stétt um það, að hnekkja valdi stóratvinnurekenda og ríkisstjórnar þeirra í æðstu trúnaðarstöðum Alþýðusambands Islands og fá forystuna í hendur mönnum, sem óhætt er að treysta. Tækifærið til þessa er fulltrúakosningin á Alþýðusambandsþing á komandi hausti. 96 VINNAN ng verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.