Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 11

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 11
Kröfur togarasjómanna Þegar ritið fór í prentun var lokið ráðstefnu sjómannafélaganna um tog- arakjörin, en hún stóð dagana 4—9. ágúst. Þessi ráðstefna tók hinn gamla uppsagða samning til rækilegrar end- urskoðunar og gerði síðan nýtt samn- ingsuppkast þar sem ákvæði hins gamla samnings eru betur samræmd og gerð skýrari. Þá eru í hinu nýja uppkasti ýms nýmæli og kröfur um bætt kjör svo sem vænta má. Þessi félög áttu fulltrúa á ráðstefn- unni: Sjómannafélag Reykjavíkur; Sjómannafélag Hafnarfjarðar; Verka- lýðs- og sjómannafélag Patreksfjarð- ar; Sjómannafélag' Isafjarðar; Verka- mannafélagið Þróttur, Siglufirði; Sjó- tnannafélag Akureyrar og Fiski- annamannadeild Sambands mat- reiðslu- og framleiðslumanna. Var einn fulltrúi frá hverju félagi og einn frá Alþýðusambandi íslands. (Hafa þessi félög samningsrétt fyrir 36 tog- ara af 44 sem gerðir eru út á landinu). Helztu breytingarnar á launakjör- um, sem farið er fram á, eru eftirfar- andi: 1) Fastakaup háseta og kyndara hækki úr kr. 1080.00 á mánuði í kr. itOO.OO og kaup netamanns, báts- manns og yfirmatsveins hækki hlut- fallslega. 2) Aflahlutur á ísfiskveiðum verði 17% eins og áður, en 20% frádráttur vegna kostnaðar erlendis verði ekki greiddur af óskiptum afla, og þessum aflahlut verði skipt í 26 staði í stað 33 áður (þ. e. skipt milli þeirra sem aðild eiga að samningunum). 3) Aflaverðlaun á saltfiskveiðum hækki úr kr. 6.00 í kr. 12.00 af smá- lest og 20% hærra greitt af afla veiddum á fjarlægum miðum (Græn- land) í stað 15'% áður. 4) Aflaverðlaun af öllu lýsi verði það sama hvort heldur veitt er í ís eða salt, þannig að greitt verði kr. 40.00 af smálest lýsis nr. I. og II., eins og g'ilti á saltfiskveiðunum áður þegar afla var landað hér heima. Af lakara lýsi sé greitt kr. 30.00 á smálest í stað kr. 10.00 áður. Áður var greitt rúm- lega helmingi lægri premía fyrir lýsið á ísfiskveiðum og saltfiskveiðum þeg- ar afla var landað erlendis enda þótt verðgildi og gæði lýsisins væri að sjálfsögðu það sama. 5) Verð á ísfiski sem seldur er upp úr skipi innanlands verði reiknað skipverjum sama og útgerðarmaður fær fyrir hann, þar innifalið uppbæt- ur og styrkur sem útgerðin kann að iá, í hvaða formi sem er, og hlutum f ækkað á sama hátt og á ísfiskveiðum, þegar selt er erlendis. Aðrar kjarabætur eru þessar helzt- ar: Haínarfrí skipverja verði lengt úr einum sólarhring í tvo eftir hverja veiðiferð. Yfir þann hluta úthaldstímans sem ekki er siglt með aflann til útlanda sc skipverjum tryggt 6 daga frí í heimahöfn fyrir hvern mánuð, komi það í stað siglinga-fríanna gömlu þeg- ar siklt var með fisk til útlanda. Ef til hentugleikar eru fyrir hann að hafnarfrídagar sem veittir éru milli veiðiferða eru ekki svo margir í mán- uði, á skipverji frídagana inni, þar taka frí eina veiðiferð. Þessa frídaga VXNNAN og verkalýðurinn 97

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.