Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 12

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 12
haldi skipverjar mánaðarkaupi sínu og fæðispeningum á sama hátt og í leyfum þegar skipið siglir. Þá er gert ráð fyrir að skipin sigli ekki í nýja veiðiferð rétt fyrir jól eða nýár. Orlof verði greitt 6% og útgerðin utvegi skipverjum sjóföt, vettlinga og' vinnuföt með heildsöluverði. Ákvæði eru um kaup og vinnutíma skipverja í ferðum skipa vegna við- gerða; á það sérstaklega við um skip u.tan af landi sem fara til Reykjavík- ur í viðgerð. Um það hefur ekkert verið í samningum áður. Fæðispeningar í veikindatilfellum og hafnarleyfum hækki úr kr. 15.00 á dag í kr. 18-00 í grunn. Loks eru ákvæði um forgansrétt fé- lagsmanna úr þeim félögum sem aðild eiga að samningum, til skiprúms og miðast slíkur forgansréttur við kjara- svæði hvers viðkomandi félags. Þegar skipverjar hafa verið kallað- ir til skips á ákveðnum tíma en skipið reynist ekki ferðbúið, skal hafnarfrí framlengt um næstu 8 klst. Þá er og í uppkastinu lagt bann við umskipun afla milli skipa, en sé það gert þá sé það framkvæmt í höfn. í bréfi sem Félagi ísl. botnvörpu- skipaeigenda var skrifað með frum- varpinu að nýjum samningum, var farið fram á að það beitti sér fyrir því með sjómannafélögunum að skatt- fríðindi sjómanna verði aukin. Ákveðið var að vinna að því að þau félaganna sem samningsrétt hafa um kaup og kjör á togurum, en gátu ekki tekið þátt í fundinum verði aðilar að hinum nýju samningum. Þegar heftið fór í prentun höfðu félög sjómanna boðað vinnustöðvun 21. sept- n. k. ef þá hafa ekki tekizt samningar. Fréttir eru á eina lund um einhug sjómanna og ákveðin samtök um að knýja fram kröfurnar, enda eru þær að allra dómi hinar sann- gjörnustu. Gegn sjómönnum í þessu máli er ríkisstjórnin ein og nánustu samherjar hennar í stétt stórútgerð- armanna, að því er virðist. — Vinnu- stöðvunartilkynningin nær til 35 tog- ara. Nýsköpunartogarar við hafnargarð í Reykjavík. 98 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.