Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 13

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 13
EGGERT ÞORBJARNARSON: Sameinuð verkalýðshreyfing er reginafí Kosningaúrslitin í fyrra urðu hin a.lvarlegasta viðvörun til íslenzku verkalýðsstéttarinnar. Þau sönnuðu henni, að sundrung alþýðunnar leiðir til sigurs aftur- haldsins og auðstéttarinnar en ósig- urs verkalýðsins. Þau sýndu henni áþreifanlega, að brýnasta velferðarmálið, sem allir verkalýðssinnar verða að sameinast um, er eining alþýðunnar til sóknar og varnar hagsmunum hennar, efna- hagslegum og stjórnmálalegum. Nærtækasta og afdrifaríkasta verk- efnið í baráttunni fyrir allsherjar ein- ingu verkalýðsins er það að sam- eina verkalýðinn til þess að losa verkalýðssamtökin, Alþýiðusamband íslands, úr fjötrum yfirstéttarinnar og t'lokks hennar, Sjálfstæðisflokksins. Tækifærið til þess er í kosningun- um til Alþýðusambandsþingsins, sem haldið verður í haust. ★ Sósíalistar í Verkalýðshreyfing'unni hafa alla tíð barizt fyrir einingu verkalýðssamtakanna og sjálfstæði þeirra gagnvart stóratvinnurekend- um og ríkisvaldi þeirra. Þeir hafa á öllum stigum baráttunn- ar verið reiðubúnir til samstarfs við hvern þann aðila, sem verið hefur þeim sammála í þessum efnum. Þeir hafa brýnt fyrir öðrum verka- mönnum og verkakonum, að það væri ekki aðeins til niðurlægingar verka- lýðssamtökunum, heldur beint hags- munatjón verkafólks í bráð og lengd, að heildarsamtökin væru í höndum atvinnurekendaflokksins, og þar með ríkisvaldinu háð. Á síðustu misserum hefur það kom- ið í ljós, að augu fjölmargra fleiri en sósíalista eru að uppljúkast fyrir þessum einföldu sannindum. Meðal Alþýðuflokksverkamanna og verkakvenna, sem hafa séð flokk sinn og Alþýðusambandsstjórn í trölla- höndum íhaldsins um árabil, er risin sterk hreyfing fyrir því að taka hönd- um saman við aðra verkamenn um að hrífa Alþýðusambandið úr klóm afturhaldsins og gera það að vígi verkalýðsins. Við fögnum þessum samstarfsvilja. Við álítum, að slíkt samstarf gæti ekki aðeins tekið algera forystu í Alþýðu- sambandinu, heldur jafnframt fært verkalýðnum auknar kjara- og rétt- indabætur og orðið grundvöllur að vaxandi veldi verkalýðsins í landinu. Þessi samstarfsvilji þarf að verða VINNAN og verkalýðurinn 99

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.