Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 14
að veruleika í Alþýðusambandskosn-
ingunum, er hefjast í næsta mánuði.
í öllum þeim verkalýðsfélögum,
þar sem stjórnarflokkarnir og hægri
rnennirnir í Alþýðuflokknum hafa
hafa haft fulltrúa, þarf að sameina
krafta verkalýðsins til að tryggja sig-
ur þeirra manna, sem yilja samvinnu
um að kjósa nýja sambandsstjórn —
án fulltrúa ríkisstjórnarinnar eða er-
indreka hennar.
í þeim félögum, þar sem fulltrúar
hafa verið úr hópi vinstri manna,
þarf að sameina alla krafta til þess
að tryggja þeim fulltrúum sem sterk-
asta kosningu.
í kosningunum til Alþýðusam-
bandsþings verður markmiðið fyrst
og og fremst að vei'a það að feila fuil-
trúa afturhaldsins og kjósa í þeirra
stað menn, sem lýsa yfir hollustu sinni
við það samstarf, sem nú er haíið.
Leiðin til öruggs meirihluta vinstri
manna er sem sagt fólgin í því, að
þeir sameinist um að fella frá kosn-
ingu alla fylgismenn samstarfsins við
atvinnurekendaflokkinn.
Þess vegna dettur t. d. engum í hug,
að samstarfið byggist á því að sósíal-
istar taki fulltrúa af vinstri Alþýðu-
fiokksmönnum eða vinstri Alþýðu-
flokksmenn taki fulltrúa af sósíalist-
um. Slíkt er auðvitað ekki viðfangs-
efnið, heldur hitt að sameina kraft-
ana til að taka fulltrúa af hinum
sameinuðu andstæðingum.
Eg er þeirrar skoðunar, að yfirleitt
þurfi sú regla að gilda í kosningun-
um, að í þeim félögum, þar sem vinstri
Alþýðuflokksmenn hafa verið full-
trúar, eigi sósíalistar og aðrir sam-
herjar að styðja kosningu þeirra nú,
— og eins eigi vinstri Alþýðuflokks-
menn að styðja kosningu sósíalista
þar sem þeir hafa áður átt fulltrúa.
Það sem ræður úrslitum, er það,
hversu marga hægri menn tekst að
fella frá kosningu.
VÖLUKVÆÐI
„Vappaðu með mér Vala“
veginn, sem lá um Reykjanes,
þar nöpur golan af Garðssjó
um göngumannstötra blés
er bar sína skreiðarbyrði
á bakinu um þetta nes.
Veldu mér útsýn, Vala,
vísaðu mér á gróna laul,
þar sem hann kom að kveldi
og hvíldist, er daginn þraut.
Og dreymdi um betri daga,
í döggvaðri mosalaut.
Þú veizt, að við fengum, Vala,
veg fyrir hjól, um Reykjanes,
og napur, erlendur andi
um íslenzka hraunið blés.
En göngumannssporin gleymdust
sem gekk hann um þetta nes.
Veistu nú, góða Vala,
verða það örlög sona hans,
að ganga með opin augun
í Eldguðsins Hrunadans,
og byrðar af vopnum bera
um brennandi landið hans?
Ásgeir Ingvars.
---------------------------------«>
100
VINNAN og verkalýðurinn