Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 15
Og þaÖ sem nú ríður mest á, er það,
að' verkamenn og verkakonur í hverju
einstöku íélagi fari að ræða saman
og starfa saman á skipulegan hátt að
undirbúningi kosninganna.
★
Yfirstéttin í landinu er á nálurn
vegna þeirrar samstarfshreyfingar,
sem nú er að þróast meðal verka-
mannastéttarinnar.
Ótti hennar um, að hægri mennirnir
missi tökin á Alþýðusambandinu ljær
henni engan frið. Hinar ofstækisfullu
og rætnu árásir á Hannibal Valdimars-
son, sem nú eru nær daglegt brauð í
Morgunblaðinu og Vísi er vitnisburð-
ur um það, að yfirstéttin skilur vei,
hvað er í húfi fyrir hana.
í þeirri kosningabaráttu, sem nú
ier í hönd til Alþýðusamba-ndsþings-
ins, mun auðstéttin og hægri menn
hennar í Alþýðuflokknum hvorki
spara fé né fyrirhöfn til þess að
tryggja áfrarn yfirráð sín yfir heild-
arsamtökunum.
Gegn peningavaldi þessara aðila
hefur íslenzka verkamannastéttin
fyrst og fremst vilja sinn til samstarfs,
áræði sitt til að segja skilið við hleypi-
dóma sundrungaxinnar og hæfileika
sína til að skipuleggja baráttuna við
vellauðuga yfirstétt.
Það er engin ástæða fyrir íslenzka
verkamenn að hugsa smátt í þessum
efnum eða vantreysta afli sínu.
íslenzkur verkalýður hefur nú
stærsta tækifæri síðastliðinna sex ára
til þess að létta oki íhaldsins af Al-
þýðusambandinu og beita mætti heild-
arsamtakanna í sína eigin þágu.
Þetta er ekki aðeins tækifæri sósí-
aliskra verkamanna og Alþýðuflokks-
verkamanna; það er tækifæri allrar
stéttarinnar, þvert i gegnum öll
flokksbönd og fordóma.
★
Þegar íslenzkur verkalýður leggur
nú til samhentrar orustu um heildar-
samtök sín, þá er það auðvitað ekki
til þess eins að setja vissa menn þar
í stjórnarsæti, heldur til þess að
breyta stefnu Alþýðusambandsins úr
.þjónustu við yfirstéttina í þjónustu
við alþýðuna.
íslenzkur verkalýður tekur höndum
saman til þess að skapa grundvöll að
mannsæmandi kaupi og kjörum
handa alþýðunni, tryggja íslenzkum
verkalýð íslenzka atvinnu, beita afli
samtakanna til lausnar húsnæðis-
vandamálsins, beita því til þess að
hin ofsaríka auðstétt landsins verði
látin axla þær skattabyrðar, sem
henni bera, beita því til þess að
tryggja framsækna þróun íslenzks
efnahagslífs og verja það fyrir þeim
erlendum og innlendum óvinum, sem
sitja á svikráðum við þjóðina.
Sameinuð íslenzk verkalýðshreyf-
ing, leyst undan jarðarmeni auðvalds-
ins, yrði helzta skilyrði fyrir endur-
heimt hins þráða sjálfstæðis og full-
veldis íslands.
Sameinuð íslenzk verklýðshreyfing
myndi geta orðið það reginafl ís-
lenzkra stjórnmála, er opnað gætu
leiðina til efnahags- og' félagslegrar
farsældar hins vinnandi manns og
þjóðarinnar í heild.
Þess vegna kalla- allar þessar að-
stæður, öll þessi þörf íslenzkrar al-
þýðu á hvern einasta karl og konu
i verklýðssamtökunum til samstarfs,
tii sameiginlegrar, bróðurlegrar bar-
áttu fyrir sigri einingarinnar í kosn-
ingunum til Alþýðusambandsþingsins.
VINNAN og verkalýðurinn
101