Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 20
„Ættu sem fyrst að fá laiisn
frá störfiim^
Samtal við írú Þórunni Kristjánsdóttur
Ekki alls fyrir löngu heimsótti
ég frú Þórunni Kristjánsdóttur,
sem nú býr í Mosfellssveit. Mér var
eérstök ánægja að sjá þessa konu,
því við höfðum ekki sézt í ein átta
ár og eigum góðs að minnast frá þeim
samfundi. Síðvetrar 1946, á meðan
sameiningarmenn enn höfðu völd í
Alþýðusambandinu, kom hún til mín
í skrifstofu sambandsins í heimsókn,
en þá var hún formaður kvennadeild-
ar Verkalýðsfélags Akraness. Við
þetta tækifæri reifaði hún mál og gaf
okkur upplýsingar, sem leiddu til þess
að sambandið hófst handa um það,
að gerðir voru nokkru síðar, eða 16.
maí um vorið, fyrstu samningarnir
um kaup og kjör matreiðslustúlkna í
vegavinnu, milli A.S í. og vegamála-
stjórnarinnar, en Þórunn stundaði þá
þennan starfa sem ráðskona í vega-
gerð ríkisins.
Þú munt enn stunda þinn gamla
starfa, eða er ekki svo? spyr ég.
„Ekki er nú því að heilsa“, segir
Þórunn og hlær við. „Sumarið 1951
var ég síðast ráðskona í vegavinnu
hjá verkstjóranum Jónasi Magnússyni
í Stardal, en fékk ekki stöðuna árið
eftir“.
Ekki hefur það verið fyrir óvan-
ingshátt, því ef mér ekki skjátlast, þá
hefur þú gengt þessum starfa árum
saman. ■— Og ekki sýnist mér heldur
svo, að þú sért komin á eftirlauna-
aldurinn og það sé orsökin, eða hvað?
Og svo maður tali nú í fullri alvöru:
Máske þú viljir segja mér nánar frá
atvikum þessa máls?
„Ég hefði líklega átt að skýra frá
þessu löngu fyrr í blöðum verkalýðs-
ins, því þegar að er gáð, varðar þetta
mál fleiri en mig,“ segir Þórunn. „Ég
hef unnið við þetta starf 5 sumur
alls. Og þegar fyrrnefndur vega-
vinnuverkstjóri losaði sig við mig.
hafði ég unnið hjá honum þrjú und-
anfarin sumur. Að sjálfsögðu var ég
og er félagsbundin í viðkomandi stétt-
arfélagi, en það er Verkalýðsfélagið
Esja, sem nær yfir Kjós, Kjalarnes og
Mosfellssveit. Forgansréttur minn til
vinnu átti að vera tryggður, ekki að-
eins í taxta félagsins, heldur einnig í
1. gr. hins almenna vegavinnusamn-
ings, sém tekur skýrt fram, að félags-
bundnir menn á viðkomandi kjara-
og félagssvæði skuli hafa forgangsrétt
ti'l vinnu, og ennfremur í 7. gr. sér-
samningsins um kjör matreiðslu-
106
VINNAN og verkalýðurinn