Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 25
hafði einhver hringt á stöðina. Konan
væri orðin hrædd um hann. Hún væri
á leiðinni niðureftir, með mynd af
honum.
Gefið honum í nefið, hrópaði ungi
œaðurinn. um leið og hann fór út.
Hver lögregluþjónninn kom af öðr-
um með neftóbak.
Fjandi er þetta þurrt hjá þér lagsi,
sagði Eyjólfur gamli við þann fyrsta,
sem bauð honum í nefið.
Hérna, ég er með blautt tóbak,
sagði annar lögregluþjónn, risavaxinn.
Eyjólfur gamli hætti við þurra tó-
bakið og seildist niður í dósina hjá
risanum og tók eins mikið af blautu
tóbaki og hann gat tekið milli tveggja
fingra. Það fór að hýrna yfir gamla
manninum. Honum fannst sjónin
skerpast og eftirtektin aukast. og það
var ekki laust við það, að minnið
væri farið að taka til starfa á ný.
Konan hans kom. Eyjólfur stóð
undir eins upp og sagði:
Veiztu, hvað ég hef gert við tóbaks-
dósina mína, kona góð?
Þú skildir hana eftir á eldhúsborð-
inu hjá kaffibollanum þínum, sagði
konan. En hvað varst þú að vilja í
bæinn peningalaus og allslaus, mað-
ur?
Eyjólfur gamli ljómaði allur. For-
tíð hans og nútíð, sem hafði sagt skil-
ið við hann í strætisvagninum, kom til
hans aftur og lýsti honum á ný. Sjó-
ferðirnar, vegavinnan, torgsalan og
giftingin og allt, sem hann hafði upp-
lifað. Og svo var tóbaksdósin á ör-
ug'gum stað.
Hvað varstu að gera niður í bæ,
svona allslaus? endurtók konan.
Ég ætlaði bara að kaupa mér í
nefið.
=sæs=
Forusta verkalýðsins í baráttu
fólksins
Ræða
DK. VITTOKIOS
forseta Alþjóðasambands verkalýðsfé-
laganna, fæst nú sérprentuð í ísl. þýð-
ingu á afgreiðslu Vinnunnar og verka-
lýðsins, Skólavörðustíg 19, Rvík.
SKÝRINGAR:
■'.. -
Lárétt: 1. fát — 6. æst — 7. ættar —
8 máttur — 10. afkvæmi — 11. tíma-
mark — 13. kvarta — 15. harðsnú-
inn — 17. kjúkling — 20. skylda —
22. umkringt — 24. tætt —- 26. haft
-— 27. kann við sig — 28. svað — 29.
son.
Lóðrétt: 2. stækkuðu — 3. dimma
— 4. heill — 5. fæði — 6. hár — 9.
þungi — 10. afkimi — 12. þraut —
14. mikla — 16. metta 18. iðin — 19.
tóm — 21. fyrr — 22. bjórstofa —
23. hljóma — 25. sendimaður.
VINNAN og verkalýöurinn
111