Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 26

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1954, Blaðsíða 26
t ri austni ocj aestnl ----------——-------------—. Þriðja þing pólsku vei'kalýðsfélag- anna var haldið í Varsjá dagana 5.— í). maí s.l. — Á þessu þingi voru gefn- ar athyglisverðar upplýsingar um þær framfarir sem orðið hafa í kjaramál- um alþýðu og efnahagsmálum þjóð- arinnar. Það var meðal annars upp- lýst, að meðan auðborgarar og stór- jarðeigendur réðu þar ríkjum var landið arðrænt miskunnarlaust af eilendum auðvaldsríkjum, enda iðn- aður landsins í öftustu röð miðað við Evrópu. En nú, undir forystu verka- lýðsins hefur landið tekið fimmta sæti í hópi háþi'óaðra Evrópuþjóða. Á síðast liðnum sex mánuðum haía orðið tvær stórfelldar verðlækkanir á nauðsynjavörum almennings. Og ssmfara stöðugt vaxandi rauntekjum verkalýðsins aukast og fullkomnast í sífellu hinar opinberu tryggingar verkalýðsins, húsakostur fer batnandi, menningar- og menntastofnunum fjölgai' o. s. frv. Enda nema nú út- gjöld hins opinbera til trygginga og menningarmála um Vi af gjöldum þetta ár eða um 25 milljörðum zloty. ★ Á síðustu árum hefur framleiðsla neyzluvara aukizt mjög í Búlgaríu undir þjóðarforystu verkalýðsins. Árið 1925 var þar framleitt í iétta- iðnaðinum meira en þrefalt á við árið fyrir stríð, 1939. Þetta er sér- staklega athyglisvert þegar þess er gætt, að 1944, þegar alþýðan tók völd- in, hafði iðnaðarframleiðsla landsins dregizt saman um 64% miðað við 1939. — Á árunum 1949—1952 jókst framleiðslan í þungaiðnaðinum um 250%. — Að sama skapi blómstrar bagui' búlgarskrar alþýðu með ári hverju sem líður. •k Einnig í Bandaríkjum N.-Ameríku vex fjöldahreyfing friðunnandi manna gegn ógn kjarnorkústyrjaldar- Stéttarfélög námumanna, renni- og steypusmiða og hið alþjóðlega Sam- band leður- og pelsgerðarmanna hafa gert kröfur um bann kjarnorku- vopna. Fjöldi ýmiskonar deilda verka- lýðssambanda svo sem Nr. 6„ deild bílaviðgerðarmanna úr CIO og mörg blöð verkalýðssambanda (blað námu- verkamanna CIO news“, „Labor, blað járnbrautarsambandsins, blað Eelags bílaviðgerðarmanna „Ford Fackts“, „Dispatcer", blað hins al- þjóðlega sambands hafnar- og lager- húsavei'kamanna). ■— Öll þessi blöð hafa reist kröfuna um bann kjarn- oi'kuvopna. Mörg félög og sambönd verkafólks í Ameríku hafa tekið sömu afstöðu. Á þingi sambands verkamanna í vefnaðarverksmiðjum gaf framkvæmdanefndin yfirlýsingu í sama anda. Ralph Halstein, forseti ClO’s-sambands slátrara, ræddi um hættu þá sem heiminum stæði af vetnissprengjunni og gaf svolátandi yfirlýsingu: Þar eð takmark okkar er friður, ber oss að keppa að því í verki.“ ★ 112 VINNAN og verkalýdurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.