Vinnan og verkalýðurinn - 15.12.1954, Blaðsíða 16

Vinnan og verkalýðurinn - 15.12.1954, Blaðsíða 16
BJÖRN BJARNASON: Af alþjóðavettvangi Á miðstjórnarfundi Alþjóðasam- bands Verkalýðsfélaganna, WFTU, er haldinn verður í Varsjá nú í desem- ber, verður „Réttindaskrá verkalýðs- samtakanna“ eitt aðalumræðuefnið. Síðan 3. þingið var haldið hafa hinar ýmsu deildir sambandsins fætt Rétt- indaskrána og verður endanlega frá henni gengið á þessum miðstjórnar- fundi. Með samþykkt hennar verður barátta verkalýðsins gegn síharðn- andi ofsóknum afturhaldsins á rétt- indi verkalýðssamtakanna, skipulögð. Þessar ofsóknir afturhaldsins eru með ýmsum hætti, allt frá lagasetn- ingu eins og „Kommúnistalaganna", er Bandaríkjaþing samþykkti í ágúst s. 1., til grímulausra ofbeldisaðgerða eins og í leppríkjum Bandaríkjanna í Suður-Ameríku. Þó að áðurnefndum lögum sé fyrst og fremst stefnt gegn Kommúnista- flokki Bandaríkjanna eru einnig í þeim ákvæði, sem ætlað er að full- komna það verk sem Taft-Hartley- lögin frá 1947 hafa ekki reynzt megn- ug að vinna, að ganga að fullu milli bols og höfuðs hinnar róttæku verka- lýðshreyfingar. Lög þessi heimila rík- isstjórninni að svifta hver þau verka- lýðssamtök samningsrétti fyrir með- limi sína, sem að hennar dómi eru undir „áhrifum“ Kommúnista. Nú vita allir hversu víðfeðmt hugtak orð- ið Kommúnisti er hjá valdamönnum Bandaríkjanna, svo að með þessu á- kvæði er stjórninni raunverulega gef- in heimild til að svifta hvaða verka- lýðsfélag er henni lýst, samningsrétt- inum, sem vitanlega er eitt og hið sama og að banna því alla starfsemi Að þessari lagasetningu áttu báðir aðalflokkarnir jafnan hlut og keppt- ust jafnvel um hvor þeirra gæti geng- ið lengra í þjónustu sinni við auðvald Bandaríkjanna er með þessari laga- setningu hyggst mæta vaxandi ein- ingu og baráttuvilja bandaríska verkalýðsins. í Chile, smáríki sem algerlega er í klónum á bandarísku kopar- og fos- fathringunum, hefir ríkisstjórnin sett herlög til að hindra kjarabaráttu verkalýðsins og ofurselja hann taum- lausu arðráni hringanna. í Columbiu mega verkalýðsfélögin ekki halda fundi án samþykkis verká- lýðsmálaráðuneytisins, það verður einnig að samþykkja dagskrá fund- anna og hefir sjóði félaganna undir sinni umsjá. Landsráðstefnur má ekki halda nema sama ráðuneyti hafi sam- þykkt alla fulltrúana er þar eiga sæti. Hér er aðeins um mismunandi vinnubrögð að ræða í hjáleigunum og á höfuðbólinu, en hvorttveggja stefnir að sama marki, að knésetja verkalýðssamtökin. 198 VINNAN og verkalýðurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.