Vinnan og verkalýðurinn - 15.12.1954, Blaðsíða 27
eftir amerískri fyrirmynd. Dregið yrði
þegar í stað og menn fengju vinning-
ana beint í fangið.
Var nú farið að draga eftir amerísku
aðferðinni. Meðan á því stóð blés
lúðrasveitin nokkur þróttmikil lög,
en tókst þó ekki að yfirgnæfa kjafta-
vaðal kvennanna né hlátur karlmann-
anna.
Reyndar var einnig kaffidrykkja
og svo Var hægt að fá keyptan
sveskjugraut.
Fyrsta vinning fékk Svíinn Nilson,
hann vann hanann. Óstöðvaðndi f agn-
aðarlæti . Menn ýttu Svíanum nær
svo að hann gæti tekið á móti vinn-
ingnum. Formaðurinn tók hanann úr
kassanum, hélt honum föstum um
vængina og þannig afhenti hann Sví-
anum fuglinn. Svíinn, sem var klaufi
af guðs náð, missti hann úr sínum
stirðu fingrum. Haninn flökkti út í
salinn og settist á hausinn á Josefínu
í Nausthólum. Jesú minn, þvílíkur
fyrirgangur. Haninn galaði, kerling-
arnar æptu og Svíinn bölvaði svo að
hann sá rautt.
Formaðurinn lamdi í púltið af öll-
um kröftum, en ekkert dugði.
Nokkra stund var allt á tjá og
tundri í salnum. Litlu munaði að
menn yrðu óðir. Hamslaust regnið
hindraði þó að bardaginn við hanann
bærist út á túnið. Til allrar hamingju
náði stóri Marteinn taki á hálsi han-
ans og stöðvaði þar með djöfulgang-
inn. Er hananum hafði verið troðið í
kassan sinn kyrrðist aftur í salnum.
Næsta vinning, grísinn, fékk óðals-
þóndinn og ístrubelgurinn frá
Skriðnafelli. „Sá komst til frænd-
liðsins", kveinaði Óli skóari, hann
var alltaf með opinn túlann, en fór
sér þó hægt í þetta sinn, því að
Skriðnafellsbóndinn var formaður í
niðurjöfnunarnefndinni, og Óli hafði
sjaldan hreint mjöl í pokanum varð-
andi framtalið. Bóndinn var að þvæl-
ast með grísinn í körfunni allt kvöld-
ið og átti ekki sjö dagana sæla.
„Næsti vinningur", öskraði formað-
urinn og lamdi ákaft í púltið. „Nú
verður dregið um kiðið og mótorhjól-
ið. Látið ekki happ úr hendi sleppa!“
Hjólið snerist. Allir kepptust við að
verzla. „HÉR!“ æpti Símon langi með-
hjálpari. Hann tók við mótorhjólinu
við dynjandi fagnaðarlæti. „Þar
fékkstu reiðskjótann", kvein í Stínu
Framh. á bls. 221.
VINNAN og verkalýðurinn
209