Vinnan og verkalýðurinn - 15.12.1954, Blaðsíða 29
BÁLKVR
Hugi Hraunfjörð er fæddur
17. júní 1918 að Hraunprýði,
Hellissandi, Snæfellsnesi. Hann
er sonur l’cturs Hraunfjörð,
sem margir kannast við.
Sök
Mín œvisaga er ekki ný
og á sér fátt til góða.
Lúi of stritið leyndi þvi
hvað lifið hafði að bjóða.
L'm þverbak
Ég hef ekkert um það heyrt
að hann vœri refur,
en þá er víst um þverbak keyrt
þegar Helgi gefur.
Blekkng
Angri sleginn alla daga
ómurleikann tárum vigi,
þó er öll min sorgarsaga
sjálfsblekking og liaugalýgi.
um að hefja ötula baráttu fyrir sama kaupi
kvenna og karla.
B. Á sama hátt verði þegar hafin barátta
fyrir því, að sama kaup verði greitt fyrir
sömu vinnu, hvar sem hún er unnin á land-
inu. Skulu hagkvæmushi gildandi kaupgjalds-
samningar lagðir til grundvallar þeirri sam-
ræmingu.
€. Telur þingið heppilegt að sambands-
stjórn boði til ráðstefna einstakra félaga hópa
til að fjalla um þessi mál og önnur sérmál
þeirra. Sérstaklega telur þingið nauðsynlegt
að efnt verði sem fyrst til ráðstefnu verka-
kvennafélaganna um sérmál þeirra.
3.
Þingið felur væntanlegri sambandsstjórn
að fylgjast vel með baráttu stéttarsamtak-
anna í nágrannalöndunum fyrir 40 stunda
vinnuviku og hefja baráttu fyrir þeirri rétt-
arbót í þeim atvinnugreinum, sem bezt eru
til þess fallnar að taka upp þá vinnutilhögun.
Sambandsstjórn leiti þegar samninga við
Vinnuveitendasamband íslands um að gera
tilraunir í einstaka atvinnugreinum með 40
stunda vinnuviku, einkum með tilliti til
vinnuafkasta. En slíkar tilraunir hafa verið
gerðar í Noregi og Danmörku samkvæmt
samningum milli aðila og þykja þær hafa
gefið góða raun.
4.
Þingið felur stjórn A. S. í. að leita sam-
starfs við atvinnurekendur og Vinnuveit-
endasamband íslands um hvers konar úrræði,
sem stuðla að eflingu atvinnulífsins og auk-
inni vöruvöndun.‘‘
VINNAN og verkalýðurinn
211